Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 3

Viðfangsefni: Upptökustjórn.

Lýsing: Nemendur læra að vinna eigin tónlist með hjálp stafrænnar tækni og MIDI tækni. Unnið verður í hljóðveri og kennt verður bæði í einnkatímum og hóptímum. Í hljóðveri verður fyrst og fremst unnið með eigin hljóðfæraleik og stafræn hljóðfæri.

Forkröfur: Hljóðtækni 1.2, Lagasmíðar 1.2/tónsmíðar 1.2, eða nokkur reynsla af lagasmíðum og upptökum.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hljóðvinnsluforritum og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á við upptöku og útfærslu eigin lagasmíða
  • Helstu gerðum hljóðnema og eiginleikum þeirra
  • Hljóðverinu sem vinnurými til upptöku, úrvinnslu og tónsköpunar


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Blanda saman lifandi og stafrænum hljóðfærum
  • Útsetja eigin tónlist


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Semja, útsetja og fullvinna tónlist
  • Setja sér markmið og klára vinnu innan ákveðins tímaramma


Námsmat: Einkunn er byggð á ástundun og verkefnum.

Til baka í áfangayfirlit.