Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 5

Viðfangsefni: Jazztónsmíðar

Lýsing: Í áfanganum semja nemendur jazzlög samkvæmt vikulegum verkefnum sem kennari setur fyrir. Nemendur hjálpast að við að flytja verkin í tímum. Einnig fræðast þeir um jazztónsmíðar ólíkra stíla og einstaklinga í gegnum hlustun, umræður og gestafyrirlesara.

Forkröfur: Jazzhljómfræði 1.2

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ólíkum stílum jazztónlistar hvað varðar tónsmíðar
  • ólíkum tónsmíðaaðferðum
  • aðferðum og hefðum í gerð lagblaða (lead sheet)
  • algengum jazzstandördum
  • algengustu píanóraddsetningum og undirleikstækni.


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • semja ólíkar gerðir jazztónlistar og skyldra stíla í gegnum tónsmíðaverkefni
  • að semja modal lög
  • að semja í blúsforminu og afbrigðum þess
  • að semja lög byggð á bassalínum
  • að semja lög byggð á tónsmíðaaðferðum klassískrar tónlistar
  • að semja lög innan hefða jazzstandarda
  • að semja laglínu fyrst
  • að semja hljómagang fyrst


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta samið einföld, áheyrileg jazzlög
  • geta sett einföld jazzlög skýrt og skilmerkilega fram á nótum samvkæmt ríkjandi hefðum í lagblaðagerð


Námsmat: Einkunn er byggð á reglulegum verkefnaskilum í formi tónsmíða, mætingu og þáttöku í umræðum.

Til baka í áfangayfirlit.