Sigrún hóf feril sinn á sviði dægurtónlistar. Síðar hóf hún sígilt söngnám við Guildhall School of Music and Drama í London og stundaði framhaldsnám á Ítalíu.

Hún hefur tekið þátt í margvíslegum uppfærslum, jafnt á sviði sem og í kvikmyndum. Frumraun sína á óperusviði þreytti hún í hlutverki dúkkunnar Olympiu í „Ævintýri Hoffmanns“. Önnur verkefni hennar hjá Íslensku óperunni eru hlutverk: Súsönnu í „Brúðkaupi Fígarós“, Gildu í „Rigólettó“, Lúsíu í „Lucia di Lammermoor“, Papagenu og Næturdrottningarinnar í „Töfraflautunni“, Víolettu í „La Traviata“, Adínu í „Ástardrykknum“, Rósalindu í „Leðurblökunni“. Hún söng Freyju, Helmwige og Skógarfuglinn í uppfærslu á „Niflungahringnum“ sem fluttur var á Listahátíð í Reykjavík og hlutverk Katie í  „Le Pays“, sem einnig var flutt á Listahátíð.

Sigrún söng hlutverk Næturdrottningarinnar í „Töfraflautunni“ haustið 2011 og var það fyrsta uppfærsla Íslensku óperunnar í Hörpu. Hún var valin söngkona ársins 2011 fyrir það hlutverk.

Sigrún hefur á löngum ferli margoft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem og erlendum hljómsveitum víða um heim. Með Sinfóníuhljómsveitinni hefur hún hljóðritað 4 einsöngsplötur, en alls hefur hún sungið inná marga tugi platna gegnum árin.

Hún söng á eftirminnilegum tónleikum í Laugardalshöll með José Carreras og steig á stokk með Placido Domingo á tónleikum hans í Egilshöll.

Sigrún hefur haldið tónleika víða um heim,t.d. í Kína í EGGINU í Peking ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, hún hefur  sungið í Japan, Kanada, Bandaríkjunum, Rússlandi, Balkanlöndunum, Norðurlöndunum, Frakklandi, Ítalíu, Slóveníu og Austurríki.

Sigrún kennir nú við Tónlistarskólann í Reykjavík og Söngskóla Sigurðar Demetz.

Árið 1995 var Sigrún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu og árið 1997 Ljónaorðu Finnska ríkisins.

Netfang: diddukeli@simnet.is
Símanúmer: 566 7424 / 867 1024

Til baka í kennarayfirlit