Guðrún stundaði nám í píanóleik frá unga aldri. Kennarar hennar voru Svana Víkingsdóttir, Margrét Eiríksdóttir og Anna Þorgrímsdóttir. Að loknu píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1986 nam Guðrún semballeik hjá Helgu Ingólfsdóttur. Framhaldsnám stundaði hún hjá Anneke Uittenbosch við Sweelinck Conservatorium í Amsterdam, hjá Jesper Böje Christensen í Scola Cantorum í Basel og hjá Francoise Lengéllé í París.

Guðrún hefur leikið inn á fjölda hljómdiska og komið fram sem einleikari, meðleikari eða sem þátttakandi í kammertónlist á tónleikum á Íslandi, víða í Evrópu, í Bandaríkjunum og í Japan.  Hún er félagi í kammerhópnum Nordic Affect og Caput-hópnum.  Guðrún leikur reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands  og hefur einnig unnið í Íslensku óperunni og með Íslenska dansflokknum.

Guðrún leikur jöfnum höndum nýja og gamla tónlist og hefur tekið þátt í frumflutningi ótal íslenskra og erlendra verka. Árið 2016 kom út einleiksdiskur með leik Guðrúnar þar sem hún leikur nýja íslenska tónlist fyrir sembal.  Hún hlaut íslensku tónlistarverðlaunin fyrir diskinn.

Guðrún hefur kennt barokktúlkun, tölusettan bassa og semballeik við Tónlistarskólann í Reykjavík með hléum síðan 1995.

Netfang: gudrunoskarsdottir@simnet.is
Símanúmer: 896 6870

Til baka í kennarayfirlit