Birkir Örn Hafsteinsson, fæddur í Reykjavík árið 1997, hóf klarínettunám ungur að aldri hjá Skólahljómsveit Austurbæjar hjá Kristjáni Þ. Stephensen og Grími Helgasyni. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann lauk framhalds- og burtfararprófi undir handleiðslu Freyju Gunnlaugsdóttur. Árið 2022 brautskráðist Birkir með bakkalárgráðu í klarínettuleik frá Hochschule für Musik Dresden, þar sem Henry Philipp var aðalkennari hans. Hann hefur einnig sótt tíma í bassaklarínettuleik hjá Christian Dolfuß. 

Birkir hefur m.a. spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Orkester Norden, hljómsveit Óperudaga og kammersveitinni Elju. Hann er einn sigurvegara keppninnar Ungir einleikarar 2022 og flutti einleik með hljómsveitinni það ár. Hann hefur tekið þátt í meistaranámskeiðum hjá Barnaby Robson, Luigi Magistrelli, Jörg Widmann og Manuel Siles. Birkir hefur verið virkur þátttakandi í flutningi á samtímatónlist í Dresden en þar hefur hann frumflutt fjölda verka eftir samnemendur sína og tekið þátt í samspilsverkefnum undir leiðsögn tónskáldanna Helmut Lachenmann og Söru Nemtsov. Birkir starfar sem klarínettukennari hjá Menntaskóla í Tónlist og Skólahljómsveit Austurbæjar, þar sem hann er einnig skólahljómsveitarstjórnandi.

Netfang:
Símanúmer:

Til baka í kennarayfirlit