Símon Karl Sigurðarson Melsteð hóf klarínettunám 9 ára gamall hjá Skólahljómsveit Austurbæjar. Hann lauk framhaldsprófi í klassískum klarínettuleik frá Tónlistarskóla FÍH undir handleiðslu Guðna Franzsonar. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann lauk burtfararprófi í klassískum klarínettuleik undir handleiðslu Freyju Gunnlaugsdóttur. Í janúar 2022 útskrifaðist hann með Bachelorsgráðu í klarínettuleik frá Listaháskóla Íslands, þar sem kennari hans var Einar Jóhannesson.

Símon hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput, Elju kammersveit og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, ásamt því að hafa tekið þátt í margvíslegum kammerverkefnum.

Netfang:
Símanúmer:

Til baka í kennarayfirlit