Hæfniþrep: 2 (1.1 og 1.2) og 3 (2.1 og 2.2)

Einingafjöldi: 3

Viðfangsefni: Sinfóníuhljómsveit, flutningur.

Lýsing: Í áfanganum leika nemendur í sinfóníuhljómsveit skólans undir handleiðslu hljómsveitarstjóra, einnig eru raddæfingar í einstökum hljóðfærahópum þar sem þeir eru samæfðir. Nemendur kynnast hljómsveitarverkum, einleikskonsertum og fá innsýn í fjölbreytt hljómsveitarverk frá ólíkum tímum. Hljómsveit skólans heldur sinfóníutónleika í fullri lengd í lok hvers námskeiðs.

Forkröfur: Miðpróf í hljóðfæraleik.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hljómsveitarverkum frá ólíkum tímum.
  • sögulegu samhengi verkanna sem unnin eru í áfanganum
  • ólíkum stíltegundum hljómsveitarbókmenntanna.


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að leika:

  • í sinfóníuhljómsveit.
  • með öðrum, leiða og fylgja þegar við á.
  • undir handleiðslu hljómsveitarstjóra.
  • einleikskafla og leiða sinn hljóðfærahóp.


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • leika af öryggi í sinfóníuhljómsveit.
  • greina og spila helstu hljómsveitarverk.
  • leika einleikskafla í hljómsveitarverkum
  • leiða sinn hljóðfærahóp í hljómsveit.


Námsmat: Hljómsveit skólans heldur sinfóníutónleika í fullri lengd og fá nemendur einkunn fyrir frammistöðu á tónleikum, mætingu og almenna ástundun í áfanganum.

Til baka í áfangayfirlit.