Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Áhersla er lögð á að efla tónheyrn og færni í að greina hvernig tónbil, laglínur, hljómar og hljómasambönd eru uppbyggð. Námið miðar að því að nemendur hafi vald á að syngja, greina og skrifa niður algeng díatónísk takt-, laglínu- og hljómferli. Tónbil eru innan áttundar, laglínu- og hljómadæmi eru oftast styttri en 4 taktar. Hrynviðfangsefni byggja á tiltölulega algengum áttundapartaferlum.

Lýsing: Tónlestur, tónbil og ritun hljóma, laglínu- og hrynferla. Í tónheyrninni er notast við Solfa kerfið.

Forkröfur: Miðpróf í tónfræði eða stöðupróf við skólann.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Laglínusöng með Solfa aðferð og uppbyggingu hljóma.
  • Hvernig algengar rytmískar hrynhendingar, byggðar að mestu á áttundapartsnótum, eru útfærðar í nótnaskrift. 


Leikniviðmið:

Hæfniviðmið:

Nemandi skal hafa tileinkað sér færni í að:

  • Heyra, syngja og rita niður einfaldar díatónískar laglínuhendingar í dúr- og blústónstiga, sem byggðar eru á algengum rytmískum hrynmynstrum.
  • Greina einföld hljómferli innan tóntegundar.
  • Hagnýta sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur öðlast til að efla samleik og spuna.  


Námsmat:

Til baka í áfangayfirlit.