Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Áhersla er lögð á að efla enn færni nemanda í beitingu rytmískrar hljómfræði og hagnýtri notkun hennar í spuna og tónsmíðum ásamt kynningu á hljómrænu tungumáli jazztónlistar. Nemendur fái haldgóða tilfinningu fyrir tengslum hljóma og tónstiga á hljóðfæri sín.

Lýsing: Áframhald á námsefni fyrri áfanga. Laustengd II V sambönd verða kennd ásamt forhljómum með sérhlutverk, pedall og ostinato, samsett hljómtákn og endurhljómsetningar, samsíða hljómar af sömu gerð og „modal“ hljómfræði. Ýtarlegri umfjöllun um tengsl hljóma og tónstiga, kynning á „modal“ tónsmíðum og hlustun.

Forkröfur: Rytmísk hljómfræði 2.1.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Hljómgreiningaraðferðum og greiningu tónstiga ásamt tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik og tónsmíðar ásamt ýmsum endurhljómsetningaraðferðum.


Leikniviðmið:

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hljómgreina algeng lög og verkefni.
  • Greina samhengi tónstiga við hljóma og um leið geta nýtt sér þá þekkingu og útfært með spuna á hljóðfæri sitt.
  • Semja eigin tónsmíðar og sóló.
  • Efla samleik og spuna.  


Námsmat: Tvö próf: Próf í lok áfanga, skriflegt og verklegt. Skriflegi þátturinn gildir 80% og verklegi þátturinn gildir 20%.

Til baka í áfangayfirlit.