Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Áhersla er lögð á að efla færni nemanda í beitingu rytmískrar hljómfræði ásamt hagnýtri notkun hennar í spuna og þeim almennu tónfræðiatriðum sem ekki var lokið með grunnnámi. Námið miðar við að nemendur hafi vald á að hljómgreina einföld lög með tilliti til spuna ásamt því að fá góða tilfinningu fyrir tengslum hljóma og tónstiga á hljóðfæri sín.

Lýsing: Kynning á algengustu hugtökum jazzhljómfræðinnar. Kennd eru bókstafshljómatákn, heimahljómar í dúr, aukaforhljómar, framlengdir forhljómar, II-V sambönd, hljómgreining og hlustun.

Forkröfur: Miðpróf í tónfræði eða stöðupróf við skólann.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Uppbyggingu hljóma og hljómgreiningaraðferðum ásamt tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik.


Leikniviðmið:

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hljómgreina einföld lög og hljómgreiningarverkefni.
  • Rita hljóma ásamt því að leika einföld lög með tilliti til spuna.
  • Efla samleik og spuna.


Námsmat: Tvö próf: Próf í lok áfanga, skriflegt og verklegt. Skriflegi þátturinn gildir 80% og verklegi þátturinn 20%. <br />

Til baka í áfangayfirlit.