Hæfniþrep: 2

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Áhersla er lögð á að efla færni nemanda í beitingu rytmískrar hljómfræði og hagnýtri notkun hennar í spuna og tónsmíðum. Námið miðar við að nemendur hafi vald á að hljómgreina algeng lög með tilliti til spuna ásamt því að fá góða tilfinningu fyrir tengslum hljóma og tónstiga á hljóðfæri sín.

Lýsing: Áframhald á námsefni fyrri áfanga. Kennd eru bókstafshljómatákn fyrir fleiri hljóma, heimahljómar í moll, lánshljómar, minnkaðir sjöundarhljómar, kirkjutóntegundir, spennur, tengsl hljóma og tónstiga, hljómgreining, laglínugreining og hlustun.

Forkröfur: Rytmísk hljómfræði 1.1.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hljómgreiningaraðferðum, laglínugreiningu og greiningu tónstiga ásamt tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik og tónsmíðar.


Leikniviðmið:

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hljómgreina algeng lög og hljómgreiningarverkefni.
  • Laglínugreina algeng lög.
  • Rita hljóma og tónstiga.
  • Geta leikið algeng lög með tilliti til spuna.
  • Efla samleik og spuna.


Námsmat: Tvö próf: Próf í lok áfanga, skriflegt og verklegt. Skriflegi þátturinn gildir 80% og verklegi þátturinn 20%.

Til baka í áfangayfirlit.