Rytmísk tónlistarbraut – popplína (almenn)

Athugið að haustið 2022 tók í gildi ný brautaruppbygging fyrir rytmíska almenna braut, popplínu og miðast taflan hér fyrir neðan við það.

Þeir nemendur sem hófu nám fyrir haustið 2022 geta nálgast eldri útgáfuna með því að smella hér.

Lýsing

Með námi á almennri poppbraut er lagður grunnur að margvíslegum störfum á sviði popptónlistar; sköpun, flutningi, tæknivinnu og hljóðfæraleik í þeim hlutföllum sem hverjum nemanda hentar.  Einnig býr námið þá nemendur sem það kjósa undir háskólanám á einhverjum þessara sviða. Námið er einstaklingsmiðað og miðar að því að treysta grunn nemenda í sem flestum hliðum popptónlistar samtímans. Í brautarkjarna eru lagasmíðar, hljóðtækni, upptökustjórnun, raftónlist og verkefnastjórnun. Gert er ráð fyrir námi á aðalhljóðfæri/söng öll árin en auk þess velur nemandi sér á lokaári leiðbeinanda lokaverkefnis og vinnur með honum að mótun eigin tónlistar. Valgreinar á brautinni gefa nemendum möguleika á að móta námið að eigin þörfum og áhugasviðum og sækja valnámsskeið á ólíkum sviðum tónlistar, þ.m.t. klassískrar tónlistar og jazz. Lögð er sérstök áhersla á samleik og samvinnu nemenda og þar fá þeir þjálfun í fjölbreyttu samspili í stærri og minni hópum.

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði fyrir nám við brautina eru að umsækjandi hafi grunnfærni í hljóðfæraleik og/eða söng og sé byrjaður að fást við sköpun tónlistar með einhverjum hætti.  Nemendur eru boðaðir í viðtal og inntökupróf þar sem lagt er mat á hæfni umsækjanda. Nemandi þarf að sýna fram á vilja og hæfni til að skapa tónlist, auk grunnfærni í hljóðfæraleik og/eða söng.

Skipulag

Nám á brautinni er að lágmarki 150 eininga nám þar sem nemendur tileinka sér hæfni á þriðja þrepi. Nemendur velja sér aðalnámsgrein sem getur verið hljóðfæraleikur, söngur, tónsmíðar eða fræðigreinar tónlistar. Valeiningar á brautinni gefa nemendum möguleika á að móta námið að eigin þörfum og áhugasviðum og sækja námsskeið á ólíkum sviðum tónlistar. Þannig geta nemendur undirbúið sig fyrir ýmiss konar framhaldsnám á sviði tónlistar. Nemendur stjórna námshraðanum og geta fengið einingar brautarinnar metnar við aðra framhaldsskóla.

Námsmat

Lögð er áhersla á að beita fjölbreyttum aðferðum við námsmat og að meta vinnu nemenda jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat getur verið fólgið í símati eða lokaprófi eða hvoru tveggja. Við námsmat er tekið mið af þekkingar-, hæfni- og leikniviðmiðum. Umgjörð námsmats er útfærð nánar í skólanámskrá og kveðið er á um námsmat fyrir tiltekna áfanga í kennsluáætlun hverju sinni. Nemendur taka hljóðfæra-/söngpróf á haust- og vorönn og fá einkunnir fyrir iðni og umsögn kennara á hverri önn. Jafnframt taka nemendur próf í bóklegum greinum við lok hvers áfanga.

Reglur um námsframvindu

Lágmarkseiningafjöldi á brautinni er 150 einingar. Í áfangalýsingum koma fram skilyrði um undanfara. Lágmarkseinkunn áfanga er 5 en í einstaka áföngum er heimilt að gera kröfu um hærri lágmarkseinkunn til þess að taka framhaldsáfanga. Samkvæmt aðalnámskrá er miðað við að nemandi í fullu námi taki 30 einingar á önn.

Hæfniviðmið

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að …

  • geta starfað sem popptónlistarmaður á víðum grundvelli.
  • geta skapað og flutt eigin tónlist.
  • geta flutt tónlist annarra.
  • nýta sér ólíkar tæknihliðar tónlistarinnar, hvort heldur er við flutning, sköpun eða upptökur
  • kynna og markaðssetja eigin tónlist.
  • takast á við háskólanám á sviði popptónlistar.
  • eiga góða möguleika á að standast inntökupróf við tónlistarháskóla hér heima og erlendis á sviði popptónlistar.
  • halda opinbera tónleika.
  • koma fram á tónleikum, hvort heldur er einn eða með öðrum.
  • nýta sér menntun sína og þekkingu í fræðigreinum tónlistar.
  • miðla tónlist á sjálfstæðan og skapandi hátt.
  • sýna frumkvæði og persónulega túlkun við tónlistarflutning og tónlistarsköpun.
  • fjalla um tónlist á ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt.
  • vera ábyrgur og virkur einstaklingur í lýðræðissamfélagi.
  • taka þátt í menningarlífi hér heima og erlendis og gera sér grein fyrir samfélagslegu hlutverki listamannsins.
  • greina eigin verk og annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi.

Einingafjöldi

Lágmarkseiningafjöldi til þess að útskrifast af brautinni er 150.

Kjarni – skylduáfangar brautarinnar:

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Hljóðfæraleikur/
söngur
Hljóðfæraleikur/söngur 1.1
Hljóðfæraleikur/söngur 1.2
Hljóðfæraleikur/söngur 2.1
Hljóðfæraleikur/söngur 2.2
Hljóðfæraleikur/söngur 3.1
Hljóðfæraleikur/söngur 3.2
 48
Hljóðtækni Hljóðtækni 1.1
Hljóðtækni 1.2
 6
Hreyfing Hreyfing 1.1
Hreyfing 1.2
Hreyfing 2.1
Hreyfing 2.2
 4
Lagasmíðar Lagasmíðar 1.1
Lagasmíðar 1.2
 10
Útskriftarverkefni Útskriftarverkefni/tónleikar  10
Rokksaga Rokksaga 1.1
Rokksaga 1.2
 6
Rytmísk hljómfræði Rytmísk hljómfræði 1.1 Rytmísk hljómfræði 1.2  8
Rytmísk tónheyrn Rytmísk tónheyrn 1.1 Rytmísk tónheyrn 1.2  8
Verkefnastjórnun Verkefnastjórnun 1.1
Verkefnastjórnun 1.2
 6
Fjöldi eininga  30 50 26 0  106

Bundið pakkaval 1

Fjöldi námskeiðapakka sem nemendur velja: 1 af 2

Hljóðfæri

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Samspil Samspil 1.1
Samspil 1.2
Samspil 2.1
Samspil 2.2
 12
Fjöldi eininga  6 6  12

Söngur

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Söngvinnubúðir Söngvinnubúðir 1.1
Söngvinnubúðir 1.2
 6
Uppfærsla Uppfærsla 1.1
Uppfærsla 1.2
 6
Fjöldi eininga  6 6  12

Bundið pakkaval 2

Fjöldi námskeiðapakka sem nemendur velja: 1 af 2

Raftónlist

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Raftónlist Raftónlist 1.1
Raftónlist 1.2
 6
Fjöldi eininga   6  6

Hljómborðsfræði

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Hljómborðsfræði Hljómborðsfræði 1.1
Hljómborðsfræði 1.2
 6
Fjöldi eininga 6  6

Bundið pakkaval 3

Fjöldi námskeiðapakka sem nemendur velja: 1 af 2

Upptökustjórn

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Upptökustjórn Upptökustjórn 1.1
Upptökustjórn 1.2
 6
Fjöldi eininga 6  6

Lagasmíðar 2

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Lagasmíðar Lagasmíðar 2.1
Lagasmíðar 2.2
 6
Fjöldi eininga 6  6

Frjálst val

Nemendur taka  20-24 valeiningar úr öðrum áföngum skólans. Nemendur geta valið áfanga bæði í rytmískri og klassískri tónlist en við hvern áfanga er tiltekið hvaða undanfara nemendur þurfa að hafa lokið til að velja áfangann. Einnig er heimilt er að meta að hámarki 20 valeiningar frá öðrum framhaldsskólum.

Í frjálsu vali þurfa nemendur að gæta að reglum í aðalnámskrá um hlutfall náms á hæfniþrep. Nemendur fá aðstoð náms- og starfsráðgjafa við val á áföngum svo nemendur geti aðlagað námið og sérhæfingu þess sem best að sínum áhuga og framtíðaráformum.