Peter er af ungversku bergi brotinn en hann var fæddur í Rožňava í Tékkóslóvakíu. Hann stundaði píanónám frá ungum aldri en lauk einleikara- og kennaramastersgráðu úr Tónlistarakademíunnni í Prag. Á námsárunum vann hann til margra verðlauna í heimalandi sínu og síðar í alþjóðlegum keppnum, svo sem í Vercelli og Enna á Ítalíu 1986 og 1989.

Peter hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990. Hann hefur haldið einleikstónleika, leikið einleik með ýmsum sinfóníuhljómsveitum og tekið þátt í kammertónleikum t.d. með Tríói Reykjavíkur og Kammertríói Kópavogs víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann hefur einnig kennt masterklassa við fjölda erlendra háskóla og tónlistarskóla á Íslandi auk þess sem hann hefur tekið að sér dómarastörf í píanókeppnum.

Út hafa komið nokkrir hljómdiskar með leik Peters, bæði sem einleikara og með öðrum.

Peter hefur kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík síðan 1993 en hann gegnir einnig prófessorsstöðu við Listaháskóla Íslands. Hann hefur kennt við Menntaskóla í tónlist frá stofnun skólans.

Netfang: peter@lhi.is
Símanúmer: 846 6591

Til baka í kennarayfirlit