Freyja stundaði nám hjá Kjartani Óskarsyni við Tónlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan með burtfararpróf vorið 1999. Sama haust hóf hún nám við Tónlistarháskólann í Berlín (Hochschule für Musik Hanns Eisler) og lauk þaðan magistersprófi í klarínettuleik vorið 2005 með láði. Tveimur árum síðar þreytti hún svokallað “Konzertexamen” við einleikaradeild Hanns Eisler-tónlistarháskólans. Kennari hennar var Karlheinz Steffens, fyrrum sólóklarínettuleikari við Berlínarfílharmóníuna. Freyja hefur jafnframt lokið MS-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og viðbótardiplóma í menntun framhaldsskólakennara frá sama skóla.

Freyja hefur leikið með ýmsum hljómsveitum og kammerhópum, svo sem Berliner Symphoniker, Staatsorchester Frankfurt, Komische Oper (Berlin) og Theatro de la Opera (Madrid). Einnig lék hún á klarínettu við leikhúsin Deutsches Theater og Volksbühne í Berlín. Freyja hefur komið fram sem einleikari með hljómsveitum á borð við Pólsku kammersveitina, Berliner Symphoniker, Preussische Kammerorchester og Ensemble für neue Musik Berlin. Freyja hefur frumflutt fjöldann allan af einleiksverkum fyrir klarínettu, meðal annars eftir Konstantiu Gourzi, Allessandro Solbiati, Luca Franscesconi, Sigfried Mattus, Amos Elkana og Atla Heimi Sveinsson. Hún hefur einnig unnið með myndlistarmönnum á borð við Bruce Naumann og Alexander Polzin.

Haustið 2007 kom út geisladiskurinn Un brin de bruyére hjá ítalska útgáfufyrirtækinu Stradivarius þar sem Freyja leikur samtímatónlist með semballom- leikaranum Luigi Gaggero. Vorið 2010 stofnaði Freyja útgáfufélagið “Tjara” í Berlín og hefur hún gefið út geisladiska undir merkjum þess, Kviðu vorið 2010 og Hugsaðu um búskapinn, hættu að daðra, söngva eftir Ása í Bæ og Oddgeir Kristjánsson. Árið 2012 kom út geisladiskurinn Skrímsli þar sem Freyja leikur einleiksverk fyrir klarínettu. Freyja sá um listræna stjórnun á tónlistarhátíðinni Samos young artist festival á Grikklandi sumrin 2013 og 2014. Hún hefur jafnframt gegnt fjölmörgum trúnaðar- og stjórnarstörfum fyrir hönd tónlistarmanna og var valin Bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2010.

Freyja var ráðin aðstoðarskólastjóri við Tónlistarskólann í Reykjavík skólaárið 2013-2014 og aftur frá hausti 2015. Hún var ráðin aðstoðarskólameistari við MÍT þegar skólinn tók til starfa og skólameistari frá árinu 2021.

Netfang: freyja@menton.is
Símanúmer: 861 6107

Til baka í kennarayfirlit