Andrés Þór lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla FÍH 1999, BA gráðu í jazzgítarleik og kennslufræðum frá Konunglega tónlistarháskólanum í Haag í Hollandi 2004 og MA gráðu frá sama skóla árið 2006.  Andrés hóf að starfa sem hljóðfæraleikari 1994 á dansleikjum en síðari ár hefur hann verið virkur í íslensku tónlistarlífi með eigin jazzhljómsveitir auk þess að starfa sem hljóðfæraleikari í hljóðverum, tónleikauppfærslum og í leiksýningum.  Andrés hefur gefið út fjölmarga hljómdiska í eigin nafni sem og í samstarfi við aðra. Andrés hefur margoft verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna og var útnefndur Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2014.

 

Netfang: andres@menton.is
Símanúmer: 699 6327

Til baka í kennarayfirlit