Eftir að hafa lokið burtfararprófi frá Tónlistarskóla FÍH kláraði Agnar nám við Conservatorium van Amsterdam og einkanám hjá Larry Goldings í New York. Í New York komst Agnar í kynni við fleiri þekkta tónlistarmenn á sviði djassins en þau kynni leiddu m.a. til útgáfu fyrsta geisladisks hans sem ber nafnið 01. Frá því þá hefur Agnar gefið út fjölda geisladiska til viðbótar. Agnar hefur margoft verið tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna og tvisvar hlotið þau.

Agnar skrifaði heila dagskrá fyrir Stórsveit Reykjavíkur 2010 og var hún flutt á tónleikum það ár. Tvö verkanna voru svo tekin upp og gefin út 2011 á disknum HAK. Sá diskur hlaut íslensku tónlistarverðlaunin sem djass diskur ársins. Agnar hefur starfað með heimsklassa djasstónlistarmönnum. Þar má nefna Bill Stewart, Ben Street, Seamus Blake, Chris Cheek, Ingrid Jensen, Frank Foster, Drew Gress, John Hollenbeck, Ari Hoenig og Perico Sambeat.

Agnar hefur verið kennari við Tónlistarskóla FÍH frá 2001. Hann hefur útskrifað fjölda nemenda og sá um að skrifa ritmíska-píanóhlutann í aðalnámskrá tónlistarskólanna fyrir Menntamálaráðuneytið.

Auk þessa hefur Agnar á tónlistarferli sínum unnið til verðlauna svo sem „Outstanding Musicianship Award“ frá Berklee tónlistarháskólanum í Boston og komist í undanúrslit í Alþjóðlegu djass-píanókeppninni Martial Solal í París haustið 2002. Hann hefur útsett lög fyrir geislaplötur og söngleiki, starfað með Stórsveit Reykjavíkur í mörg ár, leikið á tónleikum hérlendis sem erlendis, verið píanóleikari og annast tónlistarstjórn í leikhúsi. Agnar sá meðal annars um tónlistina í Söngvaseið, Mary Poppins og Billy Elliot fyrir Borgarleikhúsið. Agnar starfar nú sem djasspíanisti en kennir jafnframt píanóleik við djassdeild Tónlistarskóla FÍH. Agnar var útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar 2010.

Netfang: agnarmagnusson@internet.is
Símanúmer: 695 1496

Til baka í kennarayfirlit