Hæfniþrep: 1 (1.2, 1.2) og 2 (2.1, 2.2)

Einingafjöldi: 2

Viðfangsefni:

Lýsing: Hóptími fyrir söngnema í mið- og framhaldsnámi þar sem áhersla er á margvíslega notadrjúga þjálfun og upplýsingar fyrir söngvara á sviði rytmískrar tónlistar.

Forkröfur: Grunnpróf í söng.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa ölast þekkingu og skilning á:

  • Ólíkum söngstílum rytmískrar tónlistar svo sem; Slow swing, Medium swing, Med.up swing, Up swing Latin, Ballad, Blues, Funk, Gospel , Pop, Rock.
  • Míkófóntækni, hljóðkerfum og hljómstillingu.
  • Hafi kynnst spuna og hafi þekkingu til að rita upp spunna sólókafla þekktra listamanna.
  • Hafi öðlast þekkingu á líffræði raddarinnar og raddheilsu.


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • Meðförum míkrófóna og hljóðkerfa, spuna, uppritun og hljómsveitarstjórn.
  • Hafi öðlast umtalsverða þjálfun í að koma fram á sviði.


Hæfniviðmið:

Að nemendur verði öruggari í framkomu, hafi betri þekkingu á stílum, séu öruggari í spuna og byggi á traustari rytmískum grunni. Einnig að þeir hafi víkkað sýn sína hvað varðar ólíkar tónlistartegundir og undirstíla þeirra.



Námsmat: Einkunn byggð á mætingu og frammistöðu.

Til baka í áfangayfirlit.