Rebekka Blöndal hóf nám í FÍH árið 2014 og útskrifaðist frá MÍT árið 2019 með framhaldspróf í rytmískum söng. Rebekka lauk B.Mus.Ed í Rytmískri söng- og hljóðfærakennslu frá Listaháskóla Íslands vorið 2025 og hefur starfað sem söngkennari í nokkur ár. Hún leggur stund við kennslufræðinám í haust í Listkennsludeild Listaháskólans á mastersstigi.
Rebekka hefur starfað sem söngvari frá árinu 2011, þá upphaflega á dansleikjum en síðar fór hún að koma fram sem tónlistarkona á sviði jazztónlistar og einnig með eigin tónlist. Rebekka hefur komið víða fram og sungið inn á plötur undir eigin nafni og í samstarfi við aðra. Rebekka hefur alloft verið tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í flokki djass og blús tónlistar en hún hlaut verðlaunin árið 2023 fyrir "Söng ársins 2022" í sínum flokki.
Netfang: rblondal@gmail.comSímanúmer: 8449202
Til baka í kennarayfirlit