Rytmísk tónlistarbraut (almenn)

Lýsing

Brautin veitir nemendum trausta grunnmenntun á sviði tónlistar, bæði þeim sem hyggjast gerast atvinnumenn í tónlist og sem undirbúningur undir fjölbreytt nám og störf. Brautarkjarni rytmískrar tónlistarbrautar samanstendur af þeim námsgreinum sem þarf til þess að ljúka framhaldsprófi í rytmískri tónlist. Þriðjungur brautarinnar er í frjálsu vali og gefur það hverjum nemanda tækifæri til þess að aðlaga námið og sérhæfingu þess að sínum áhuga og framtíðarstefnu. Boðið er upp á fjölbreytta samspilsáfanga og nemendur eru hvattir til að taka virkan þátt í tónleikum og lifandi tónlistarflutningi sem skólinn stendur fyrir. Jafnframt er lögð áhersla á að veita nemendum haldgóða kennslu í bóklegum tónlistargreinum. Að námi loknu hafa nemendur hlotið víðtæka þjálfun í því að koma fram á tónleikum, bæði í einleiks- og samspilshlutverki og hafa haldið sjálfstæða opinbera tónleika. Nemendur sem útskrifast af brautinni eiga að hafa færni til að nýta sér þekkingu sína á fræðigreinum tónlistar, bæði við tónlistarflutning, umfjöllun um tónlist og frekara nám. Nemendur hafa einnig öðlast færni til að sýna frumkvæði og persónulega túlkun við tónlistarflutning og geta fjallað um tónlist á ábyrgan, gagnrýnan og skapandi hátt.

Inntökuskilyrði

Nemendur þreyta inntökupróf í hljóðfæraleik/söng og fræðigreinum tónlistar þar sem lagt er faglegt mat á hæfni nemenda. Miðað er við að nemendur hafi lokið miðprófi í hljóðfæraleik, grunnprófi í söng eða sambærilegu námi.

Skipulag

Nám á brautinni er að lágmarki 150 eininga nám þar sem nemendur tileinka sér hæfni á þriðja þrepi. Nemendur velja sér aðalnámsgrein sem getur verið hljóðfæraleikur, söngur, tónsmíðar eða fræðigreinar tónlistar. Valeiningar á brautinni gefa nemendum möguleika á að móta námið að eigin þörfum og áhugasviðum og sækja námsskeið á ólíkum sviðum tónlistar. Þannig geta nemendur undirbúið sig fyrir ýmiss konar framhaldsnám á sviði tónlistar. Nemendur stjórna námshraðanum og geta fengið einingar brautarinnar metnar við aðra framhaldsskóla.

Námsmat

Lögð er áhersla á að beita fjölbreyttum aðferðum við námsmat og að meta vinnu nemenda jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat getur verið fólgið í símati eða lokaprófi eða hvoru tveggja. Við námsmat er tekið mið af þekkingar-, hæfni- og leikniviðmiðum. Umgjörð námsmats er útfærð nánar í skólanámskrá og kveðið er á um námsmat fyrir tiltekna áfanga í kennsluáætlun hverju sinni. Nemendur taka hljóðfæra-/söngpróf á haust- og vorönn og fá einkunnir fyrir iðni og umsögn kennara á hverri önn. Jafnframt taka nemendur próf í bóklegum greinum við lok hvers áfanga.

Reglur um námsframvindu

Lágmarkseiningafjöldi á brautinni er 150 einingar. Í áfangalýsingum koma fram skilyrði um undanfara. Lágmarkseinkunn áfanga er 5 en í einstaka áföngum er heimilt að gera kröfu um hærri lágmarkseinkunn til þess að taka framhaldsáfanga. Samkvæmt aðalnámskrá er miðað við að nemandi í fullu námi taki 30 einingar á önn.

Hæfniviðmið

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að …

  • Halda opinbera tónleika.
  • Koma fram á tónleikum bæði í hljómsveit og í einleikshlutverki.
  • Nýta sér menntun sína og þekkingu á fræðigreinum tónlistar.
  • Miðla tónlist á sjálfstæðan og skapandi hátt.
  • Sýna frumkvæði og persónulega túlkun við tónlistarflutning.
  • Fjalla um tónlist á ábyrgan, gagnrýnan og skapandi hátt.
  • Vera ábyrgur og virkur einstaklingur í lýðræðissamfélagi.
  • Taka þátt í menningarlífi hér heima og erlendis og gera sér grein fyrir samfélagslegu hlutverki listamannsins.
  • Greina eigin verk og annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi.

Einingafjöldi

Lágmarkseiningafjöldi til þess að útskrifast af brautinni er 150.

Kjarni – skylduáfangar brautarinnar:

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Hljóðfæraleikur/
söngur
Hljó./sön. 1.1
Hljó./sön. 1.2
Hljó./sön. 2.1
Hljó./sön. 2.2
Hljó./sön. 3.1
Hljó./sön. 3.2
 30
Hreyfing Hreyfing 1.1
Hreyfing 1.2
Hreyfing 2.1
Hreyfing 2.2
 4
Jazzsaga Jazzsaga 1.1
Jazzsaga 1.2
 6
Jazzsnarstefjun Jazzsnarst. 1.1
Jazzsnarst. 1.2
6
Jazzútsetningar Jazzúts. 1.1
Jazzúts. 1.2
 6
Rokksaga Rokksaga 1.1
Rokksaga 1.2
 6
Rytmísk hljómfræði R. hljómfr. 1.1
R. hljómfr. 1.2
R. hljómfr. 2.1
R. hljómfr. 2.2
 12
Rytmísk tónheyrn R. tónheyrn 1.1
R. tónheyrn 1.2
R. tónheyrn 2.1
R. tónheyrn 2.2
 12
Útskriftartónleikar Útskriftartónleikar  10
Fjöldi eininga  22 34 36  92

Bundið pakkaval

Fjöldi námskeiðapakka sem nemendur velja: 1 af 2

Hljóðfæri

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Samspil Samspil 1.1
Samspil 1.2
Samspil 2.1
Samspil 2.2
 12
Fjöldi eininga   6 6  12

Söngur

Námsgrein Þrep 1 Þrep 2 Þrep 3 Þrep 4 Einingar
Meðleikur Meðleikur 1.1
Meðleikur 1.2
Meðleikur 2.1
Meðleikur 2.2
Meðleikur 3.1
Meðleikur 3.2
 12
Söngvinnubúðir Söngvinn. 1.1
Söngvinn. 1.2
 4
Uppfærsla Uppfærsla 1.1
Uppfærsla 1.2
 6
Fjöldi eininga   14 8  22

Frjálst val

Hljóðfæranemendur taka að lágmarki 46 valeiningar og söngnemendur taka að lágmarki 36 valeiningar úr öðrum áföngum skólans. Nemendur geta valið áfanga bæði í rytmískri og klassískri tónlist en við hvern áfanga er tiltekið hvaða undanfara nemendur þurfa að hafa lokið til að velja áfangann. Einnig er heimilt er að meta að hámarki 30 valeiningar frá öðrum framhaldsskólum.

Í frjálsu vali þurfa nemendur að gæta að reglum í aðalnámskrá um hlutfall náms á hæfniþrep. Nemendur fá aðstoð náms- og starfsráðgjafa við val á áföngum svo nemendur geti aðlagað námið og sérhæfingu þess sem best að sínum áhuga og framtíðaráformum.