Klassísk tónlistarbraut (stúdent)
Lýsing
Með námi á klassískri tónlistarbraut til stúdentsprófs er lagður grunnur að háskólanámi á sviði tónlistar og er brautin áhugaverður valkostur fyrir nemendur sem stefna að því að hafa tónlist að atvinnu. Þar eiga nemendur þess kost að ljúka stúdentsprófi með tónlist sem aðalnámsgrein. Nemendur velja sér aðalnámsgrein sem getur verið hljóðfæraleikur, söngur, tónsmíðar eða fræðigreinar tónlistar. Brautakjarni tónlistargreina miðast við þær greinar sem þarf að ljúka til að útskrifast með fullgilt framhaldspróf í klassískri tónlist samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla. Nemendur geta valið á milli þess að sérhæfa sig í klassískri eða rytmískri tónlist en valeiningar á brautinni gefa nemendum möguleika á að móta námið að eigin þörfum og áhugasviðum og sækja valnámsskeið á ólíkum sviðum tónlistar. Þannig geta nemendur undirbúið sig fyrir ýmiss konar framhaldsnám á sviði tónlistar. Almennar bóknámsgreinar aðrar en þær sem snúa að tónlist eru kenndar við Menntaskólann í Hamrahlíð, en jafnframt er nemendum gefinn kostur á að fá almennar bóknámsgreinar metnar úr öðrum framhaldsskólum. Lögð er sérstök áhersla á samleik og samvinnu nemenda og þar fá þeir þjálfun í hljómsveitarleik og fjölbreyttu samspili í stærri og minni hópum. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur fái haldgóða kennslu í bóklegum greinum tónlistar. Náminu er ætlað að veita góðan undirbúning fyrir háskólanám í tónlist og störf tónlistarmanna.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði fyrir nám við brautina er að umsækjandi hafi lokið grunnskólaprófi með fullnægjandi árangri. Nemandi þarf að hafa lokið grunnskóla með B eða hærra í kjarnagreinum (eða áfanga á fyrsta hæfniþrepi) til þess að geta hafið nám á öðru hæfniþrepi. Jafnframt fer fram inntökupróf þar sem lagt er mat á hæfni umsækjanda í hljóðfæraleik/söng og tónfræðigreinum út frá faglegum forsendum. Miðað er við að nemendur hafi lokið miðprófi í hljóðfæraleik, grunnprófi í söng eða sambærilegu tónlistarnámi.
Skipulag
Námið er skipulagt sem þriggja til fjögurra ára nám til stúdentsprófs með tónlist sem aðalnámsgrein. Nám á brautinni er að lágmarki 200 einingar, þar sem nemendur tileinka sér hæfni á þriðja þrepi. Miðað er við að nemandi í fullu námi ljúki 200 einingum á þremur árum. Á brautinni er megináhersla á klassíska tónlist en nemendur geta einnig sótt námskeið á ólíkum tónlistarsviðum. Valnámskeið á brautinni gefa nemendum færi á að aðlaga námið að sínum þörfum og áhugasviðum, til að mynda að búa sig undir ýmiss konar framhaldsnám á sviði tónlistar. Nemendur velja sér aðalnámsgrein, svo sem hljóðfæraleik, söng eða bóklegar greinar á sviði tónlistar.
Námsmat
Lögð er áhersla á að beita fjölbreyttum aðferðum við námsmat og að meta vinnu nemenda jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat getur verið fólgið í símati eða lokaprófi eða hvoru tveggja. Við námsmat skal tekið mið af þekkingar-, hæfni- og leikniviðmiðum. Kveðið er á um námsmat hvers áfanga fyrir sig í áfangalýsingum. Nemendur taka hljóðfæra-/söngpróf á haust- og vorönn og fá einkunn fyrir iðni og umsögn kennara á hverri önn.
Reglur um námsframvindu
Lágmarkseiningafjöldi á brautinni er 200 einingar og miðað er við að nemandi í fullu námi ljúki 33 einingum á önn og taki því að meðaltali 66 einingar á ári. Í áfangalýsingum koma fram skilyrði um undanfara. Lágmarkseinkunn áfanga er 5 en í einstaka áföngum er heimilt að gera kröfu um hærri lágmarkseinkunn til þess að geta tekið framhaldsáfanga.
Hæfniviðmið
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að:
- Takast á við háskólanám á sviði tónlistar.
- Eiga góða möguleika á að standast inntökupróf við tónlistarháskóla hér heima og erlendis.
- Halda opinbera tónleika.
- Koma fram á tónleikum bæði í hljómsveit og í einleikshlutverki.
- Nýta sér menntun sína og þekkingu á fræðigreinum tónlistar.
- Miðla tónlist á sjálfstæðan og skapandi hátt.
- Sýna frumkvæði og persónulega túlkun við tónlistarflutning.
- Fjalla um tónlist á ábyrgan, gagnrýnan og skapandi hátt.
- Vera ábyrgur og virkur einstaklingur í lýðræðissamfélagi.
- Taka þátt í menningarlífi hér heima og erlendis og gera sér grein fyrir samfélagslegu hlutverki listamannsins.
- Greina eigin verk og annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi.
Einingafjöldi
Fjöldi framhaldsskólaeininga til þess að útskrifast af brautinni er að lágmarki 200.
Kjarni – skylduáfangar brautarinnar:
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 | Einingar |
---|---|---|---|---|---|
Danska | Danska 1 | 5 | |||
Enska | Enska 1 Enska 2 |
Enska 3 | 15 | ||
Hljómfræði | Hljómfræði 1.1 Hljómfræði 1.2 |
Hljómfræði 2.1 Hljómfræði 2.2 |
12 | ||
Hreyfing | Hreyfing 1.1 Hreyfing 1.2 Hreyfing 2.1 Hreyfing 2.2 |
4 | |||
Íslenska | Íslenska 1 Íslenska 2 |
Íslenska 3 Íslenska 4 |
20 | ||
Kammertónlist | Kammertónlist 1.1 Kammertónlist 1.2 |
6 | |||
Lífsleikni | Lífsleikni 1.1 Lífsleikni 1.2 |
6 | |||
Stúdentsprófstónleikar | Stúdentsprófstónleikar | 10 | |||
Stærðfræði | Grunnáfangi Stærðfræði 2 |
10 | |||
Tónlistarsaga | Tónlistarsaga 1.1 Tónlistarsaga 1.2 Tónlistarsaga 2.1 Tónlistarsaga 2.2 |
12 | |||
Tónheyrn | Tónheyrn 1.1 Tónheyrn 1.2 |
Tónheyrn 2.1 Tónheyrn 2.2 |
12 | ||
Fjöldi eininga | 22 | 53 | 37 | 112 |
Bundið pakkaval
Fjöldi námskeiðapakka sem nemendur velja: 1 af 3
Hljóðfæri (önnur en píanó)
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 | Einingar |
---|---|---|---|---|---|
Kammertónlist | Kammertónlist 2.1 Kammertónlist 2.2 |
6 | |||
Hljóðfæraleikur | Hljóðfæraleikur 1.1 Hljóðfæraleikur 1.2 |
Hljóðfæraleikur 2.1 Hljóðfæraleikur 2.2 Hljóðfæraleikur 3.1 Hljóðfæraleikur 3.2 |
30 | ||
Hljómsveit | Hljómsveit 1.1 Hljómsveit 1.2 |
Hljómsveit 2.1 Hljómsveit 2.2 |
12 | ||
Meðleikur | Meðleikur 1.1 Meðleikur 1.2 |
Meðleikur 2.1 Meðleikur 2.2 Meðleikur 3.1 Meðleikur 3.2 |
12 | ||
Fjöldi eininga | 20 | 40 | 60 |
Píanó
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 | Einingar |
---|---|---|---|---|---|
Kammertónlist | Kammertónlist 2.1 Kammertónlist 2.2 |
6 | |||
Hljóðfæraleikur | Hljóðfæraleikur 1.1 Hljóðfæraleikur 1.2 |
Hljóðfæraleikur 2.1 Hljóðfæraleikur 2.2 Hljóðfæraleikur 3.1 Hljóðfæraleikur 3.2 |
30 | ||
Hljómsveit | Píanóhóptími 1.1 Píanóhóptími 1.2 Píanóhóptími 2.1 Píanóhóptími 2.2 |
12 | |||
Fjöldi eininga | 22 | 26 | 48 |
Söngur
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 | Einingar |
---|---|---|---|---|---|
Meðleikur | Meðleikur 1.1 Meðleikur 1.2 |
Meðleikur 2.1 Meðleikur 2.2 Meðleikur 3.1 Meðleikur 3.2 |
12 | ||
Samsöngur | Samsöngur 1.1 Samsöngur 1.2 |
Samsöngur 2.1 Samsöngur 2.2 |
8 | ||
Söngur | Söngur 1.1 Söngur 1.2 |
Söngur 2.1 Söngur 2.2 Söngur 3.1 Söngur 3.2 |
30 | ||
Ópera | Ópera 1.1 Ópera 1.2 |
6 | |||
Fjöldi eininga | 18 | 38 | 56 |
Bundið pakkaval
Fjöldi námskeiðapakka sem nemendur velja: 1 af 4
3. mál – þýska
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 | Einingar |
---|---|---|---|---|---|
Þýska | Þýska 1 Þýska 2 Þýska 3 |
15 | |||
Fjöldi eininga | 15 | 15 |
3. mál – ítalska
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 | Einingar |
---|---|---|---|---|---|
Ítalska | Ítalska 1 Ítalska 2 Ítalska 3 |
15 | |||
Fjöldi eininga | 15 | 15 |
3. mál – franska
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 | Einingar |
---|---|---|---|---|---|
Franska | Franska 1 Franska 2 Franska 3 |
15 | |||
Fjöldi eininga | 15 | 15 |
3. mál – spænska
Námsgrein | Þrep 1 | Þrep 2 | Þrep 3 | Þrep 4 | Einingar |
---|---|---|---|---|---|
Spænska | Spænska 1 Spænska 2 Spænska 3 |
15 | |||
Fjöldi eininga | 15 | 15 |
Frjálst val
Hljóðfæranemendur (önnur hljóðfæri en píanó) taka að lágmarki 13 valeiningar, píanónemendur taka að lágmarki 25 valeiningar og söngnemendur taka að lágmarki 17 valeiningar úr öðrum áföngum skólans. Nemendur geta valið áfanga bæði í rytmískri og klassískri tónlist. Við hvern áfanga er tiltekið hvaða undanfara nemendur þurfa að hafa lokið til að velja áfangann.
Í frjálsu vali þurfa nemendur að gæta að reglum í aðalnámskrá um hlutfall náms á hæfniþrep. Nemendur fá aðstoð náms- og starfsráðgjafa við val á áföngum svo nemendur geti aðlagað námið og sérhæfingu þess sem best að sínum áhuga og framtíðaráformum.