Kontrabassaleikarinn Þórir Jóhannsson lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og síðar Post Graduate Diploma frá the Royal Northern College of Music í Manchester. Eftir nokkurra ára dvöl í Danmörku þar sem Þórir var lausráðinn við nokkrar helstu hljómsveitir beggja vegna Eyrarsundsins flutti hann aftur til Íslands haustið 2000 og er nú fastráðinn við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann er kennari í Tónlistarskóla Kópavogs og hefur einnig leiðbeint í Alþjóðlegu Tónlistarakademíunni í Hörpu (HIMA).

Þórir er virkur kammertónlistarmaður þar sem hann hefur m.a. komið nokkrum sinnum fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins. Þórir spilar reglulega með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands auk þessa að hafa frumflutt tvö einleiksverk sem voru samin sérstaklega fyrir hann, “Gradus ad Profundum” eftir Karólínu Eiríksdóttur og “Bagatelle” eftir Óliver Kentish, konsertinn “Ad Lucem” fyrir kontrabassa og kammersveit einnig eftir Óliver og “Rhapsodia per Contrabasso et Piano” eftir Þórð Magnússon sem kom út á hljómdiskinum “La Poesie” árið 2013.

Í nóvember árið 2006 kom Þórir fram sem einleikari fyrir hönd Félags Íslenskra Tónlistarmanna á ársfundi Nordisk Solistråd í Osló.

Frá haustmánuðum 2008 þáði Þórir laun úr Listasjóði til í sex mánaða og hélt ásamt Sólveigu Önnu Jónsdóttur píanóleikara tónleika á Dalvík, Akureyri og Reykjavík.

Undanfarin ár hefur Þórir átt í farsælu samstarfi við Ingunni Hildi Hauksdóttur píanóleikara þar sem þau hafa m.a spilað saman á alþjóðlegri ráðstefnu kontrabassaleikara í Kaupmannahöfn, á tónleikum Félags Íslenskra Tónlistarmanna “Klassík í Vatnsmýrinni” og með styrk Tónlistarsjóðs á Akranesi og Akureyri.

Netfang:
Símanúmer:

Til baka í kennarayfirlit