Þóra Fríða Sæmundsdóttir lauk píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1978. Helstu kennarar hennar voru Halldór Haraldsson og Ursula Ingólfsson. Eftir það lá leið hennar til Þýskalands þar sem hún stundaði framhaldsnám við tónlistarháskólann í Freiburg . Þaðan lauk hún Diploma prófi 1981. Eftir það var hún við nám í tónlistarháskólanum í Stuttgart ,en þar valdi hún ljóðaflutning (Liedgestaltung) sem sérgrein undir handleiðslu Prof. Konrad Richter.

Frá því að Þóra Fríða kom heim frá námi 1984 hefur hún starfað sem píanóleikari og kennari í Reykjavík. Þóra Fríða hefur verið virk í tónleikahaldi og leikið á mörgum tónleikum hérlendis og erlendis. Einnig hefur hún leikið margsinnis í útvarpi og sjónvarpi. Þóra Fríða var meðlimur í íslensku hljómsveitinni sem starfaði á árunum 1983-1993.

Þóra Fríða hefur starfað sem meðleikari við marga kóra og einnig stjórnað m.a. Kór Menntaskólans við Sund, Kór Orkuveitu Reykjavíkur, og kammerhóp, sem kallast Veirurnar.

Þóra Fríða sat í stjórn Íslandsdeildar EPTA sem er Evrópusamband píanókennara 2005-2010 og var formaður félagsins 2007-2010.

Þóra Fríða kennir m.a. við tónlistarskóla FÍH , Söngskólann í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins.

Netfang: thorafrida55@gmail.com
Símanúmer: 897 5324

Til baka í kennarayfirlit