Ingi Bjarni hefur gefið út plötur með eigin verkum og leikið eigin tónsmíðar á Íslandi, í Japan og í Evrópu. Hann hefur hlotið athygli og viðurkenningu fyrir plötur sínar, en þær hafa allar fengið jákvæða gagnrýni í erlendum miðlum. Þrjár af plötum hans hafa hlotið tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna. Einnig hefur hann hlotið verðlaun sem bjartasta vonin í jazztónlist (2020) og fengið verðlaun fyrir jazzlag ársins (2024). Hann lagði stund á jazz-píanó nám í Tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist þaðan árið 2011. Því næst lauk hann bachelor prófi við Konunglega Tónlistarháskólanum (Koninklijk Conservatorium) í Den Haag vorið 2016. Vorið 2018 lauk hann sérhæfðu mastersnámi í tónlist sem kallast Nordic Master: The Composing Musician. Námið fór fram í Gautaborg, Kaupmannahöfn og Osló – ein önn á hvorum stað. Þar lærði hann meðal annars hjá Misha Alperin, Anders Jormin og Helge Lien. Í bachelor náminu var aðallega einblínt á færni í klassískum jazz píanóleik, en í mastersnáminu var lögð meiri áhersla á tónsmíðar og listræn gildi. Vorið 2024 útskrifaðist hann með diplómu í listkennslufræðum frá LHÍ (viðbótardiplóma).

Netfang:
Símanúmer:

Til baka í kennarayfirlit