Geirþrúður Ása hóf tónlistarnám aðeins þriggja ára að aldri hjá Lilju Hjaltadóttur við Allegro Suzuki Tónlistarskólann. Hún lauk Bachelor of Music gráðu í fiðluleik frá Listaháskóla Íslands hjá Auði Hafsteinsdóttur og hélt þaðan til framhaldsnáms í Vínarborg hjá Boris Kuschnir og til Bandaríkjanna þar sem hún naut handleiðslu Routa Kroumovitch. Geirþrúður Ása útskrifaðist með meistaragráðu í fiðluleik frá Hartt School, University of Hartford í Connecticut árið 2014 undir handleiðslu Anton Miller.

Á námsárunum hlaut Geirþrúður Ása hlaut meðal annars námsstyrki frá Fulbright, Menningarsjóð Valitor, Menningarsjóð Glitnis, Minningarsjóð Margrétar ásamt Thor Thors sjóðnum hjá American-Scandinavian Foundation. Þá kemur Geirþrúður Ása reglulega fram á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu og í Bandaríkjunum bæði sem einleikari og flytjandi kammertónlistar. Þar má nefna tónleika í Scandinavian House í New York og í Washington D.C., Lincoln Center í New York og einleik með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins þar sem hún flutti fiðlukonsert Mendelssohn. Einnig hefur hún komið fram í Hörpu á Sígildum Sunnudögum og Tíbrá tónleikaröðinni í Salnum í Kópavogi, á Myrkum Músíkdögum og á Stimme, Leib und Seele Tónlistarfestivalinu í Salzburg ásamt píanóleikaranum Moshe Landsberg.

Hún hefur tekið þátt í flutningi kammertónlistar meðal annars með Caput og Kammersveit Reykjavíkur ásamt því leika með Connecticut Virtuosi kammersveitinni frá 2011-2014. Þá hefur hún leikið með hljómsveit Íslensku Óperunnar og Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2014 ásamt því að spila sem gestakonsertmeistari fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Geirþrúður Ása stofnaði Amaranth dúóið með Christopher Ladd, gítarleikara árið 2015 og hafa þau komið fram meðal annars á tónleikum í Mengi, Nordic Heritage Museum í Seattle, Birkman Hall í Connecticut og í Boston á 2019-2020 Artist Series hjá Boston Classical Guitar Society. Þau hafa frumflutt fjölda verka bæði hérlendis og erlendis.

Geirþrúður Ása spilar einnig með tangóhópnum Le Grand Tango og hafa þau komið fram víða síðastliðin ár.

Hún hefur tekið upp plötur meðal annars með Björk, Ólafi Arnalds, Friðrik Ómari og Halldóri Smárasyni en platan hans, STARA var tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna árið 2020.

Hún hefur einnig unnið náið með Hilmari Erni Hilmarssyni og tekið upp tónlist hans fyrir fjölmargar kvikmyndir síðastliðin ár.

Geirþrúður Ása hefur spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan 2014 og hlaut fastráðningu í fyrstu fiðludeild SÍ árið 2022.

Netfang: asagudjonsdottir@gmail.com
Símanúmer: 849 9797

Til baka í kennarayfirlit