Viðfangsefni: Raddskrá undirbúin fyrir æfingu og flutning. Slegið í 6/8, 9/8, 12/8. Stjórnun recitative í óperu æfð.

Lýsing: Hljómsveitarstjóri óperuhljómsveitarinnar skoðaður með því að æfa stjórnun á recitative og svo flóknari takttegundir æfðar. Nemandi æfir að stjórna recitativi og að syngja hlutverk óperusöngvarands samtímis. Æft með píanói í tímum. Heimsóknir til tónlistarhópa og hljómsveitastjórn æfð.

Forkröfur: Hljómsveitarstjórn og Kórstjórn I - fyrstu slögin.

Þekkingarviðmið:

Nemandi hafi öðlast allgóða þekkingu á:

  • Hlutverki hljómsveitarstjórans í óperunni. 


Leikniviðmið:

Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • Stjórna recitativi í óperu og stjórnað í 6/8, 9/8, 12/8.


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Stjórna hljómsveit/kór þar sem takturinn er óreglulegur og ófyrirsjáanlegur í tví-, þrí, og fjórskiptum takti.


Námsmat: Námsmat byggir á mætingu, undirbúinni raddskrá skilað inn, hljómsveit/kór heimsótt og æfð. Lokapróf er stjórnun og söngur á óperurecitativi með píanóundirleik.

Til baka í áfangayfirlit.