Hæfniþrep: 1
Einingafjöldi: 4
Viðfangsefni: Tónfræðileg þekkingaratriði, hljómtákn, heimahljómar í dúr, heimahljómar í moll, endar, aukaforhljómar, lánshljómar, hljómaskemu í popptónlist
Lýsing: Í áfanganum verður farið í hljómamál popp- og dægurtónlistar, frá upphafi rokktímabilsins til dagsins í dag.
Í upphafi áfangans er farið í heimahljóma í dúr og moll og svo algenga hljóma sem ekki teljast til heimahljóma en eru algengir í popp- og dægurtónlist. Kennd verða frumtök í hljómgreiningu með rómverskum sætistölum.
Síðar verður farið í hljómaskemu í popptónlist – sérstaklega þekkt hljómferli. Skoðuð verða fjölbreytt skemu og munu nemendur öðlast bæði þekkingu á mismunandi skemum, greiningu þeirra á blaði sem og eftir heyrn.

Forkröfur: Popplínuhljómfræði 1.1
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat:
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Heimahljómum í dúr og moll og öðrum algengum hljómum í dægurtónlist
- Samspil hljóma og mismunandi endum á frösum
- Hljómaskemum og hljómferlum í dægurlögum, frá 1950 til dagsins í dag
- Mismunandi útgáfum af sama hljómaskema
Leikniviðmið:
Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- Hljómgreina heimahljóma í dúr og moll
- Greina mismunandi hljómaskemu af blaði og eftir heyrn
- Hlusta á eftir bassahreyfingum í lögum og hvort hljómar séu í grunnstöðu eða hljómhvörfum
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Þekkja algeng hljómaskemu við fyrstu hlustun og geta leikið þau eftir
- Nýta hljómamál popptónlistar og útvíkka hljómamál í eigin tónsköpun
- Hlusta og geta greint fljótt þekkt hljómferli í lögum
Námsmat:
Til baka í áfangayfirlit.