Hæfniþrep: 1
Einingafjöldi: 4
Viðfangsefni: Tónfræðileg þekkingaratriði, taktur, trommutaktar, laglínur, frasar, form og áferðir í popptónlist
Lýsing: Í áfanganum leggjum við grunn að þekkingu til að geta greint popp- og dægurtónlist út frá ýmsum sjónarhornum og ýmsum tímum.

Í upphafi verður farið í að skoða form laga í þröngu og víðu samhengi. Skoðað er hvernig popplög frá 1950 fram til dagsins í dag eru byggð upp, allt frá hendingum einstakra ljóðlína upp í heildaform þeirra.

Við beinum einnig sjónum að trommutöktum. Nemendur fá útskýringu á trommusettinu, hvernig algengir trommutaktar eru uppbyggðir og verða trommutaktar í ýmsum lögum frá ýmsum tímum skoðaðir og greindir.

Forkröfur: Miðpróf í tónfræði
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat:
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Trommutöktum, hlutverki og fjölbreytileika þeirra
- Hvernig laglínur eru uppbyggðar í mismunandi tónlistarstílum
- Fjölbreyttu formi popplaga og hlutum þess
- Áferð popptónlistar
Leikniviðmið:
Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- Skrifa upp trommutakta eftir heyrn
- Greina laglínur (og texta) í frasa
- Formgreina margskonar popplög
- Heyra og greina ýmsar áferðir laga
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Greina heildarmynd lags við fyrstu hlustun
- Mynda sér persónulega skoðun um lög og stutt hana af þekkingu
- Búa til sína eigin trommutakta
- Semja fjölbreytta tónlist
Námsmat:
Til baka í áfangayfirlit.