Hæfniþrep: 1
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: Saga jazztónlistar frá upphafi til 1950, hlustun og greining.
Lýsing: Farið er í gegnum jazzsöguna frá upphafi til loka swingtímabilsins um 1950. Rætt um þróun tónlistarinnar, tengsl við aðrar tónlistarstefnur og þóðfélagsatburði.
Forkröfur: Engar.
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Próf úr efni í annarlok, hlustunarpróf og ritgerð.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu stílum jazztónlistar á tímabilinu og einkennum þeirra.
- Mikilvægustu einstaklinga og þeirra helstu verkum.
- Hvernig mikilvægir atburðir í mannkynssögunni hafa áhrif á þróun jazztónlisltar.
- Gagnkvæmum áhrifum á milli mismunandi tónlistartegunda.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Fjalla um afmörkuð viðfangsefni er tengjast jazzsögu frá byrjun 20. aldar fram undir 1950.
- Svara munnlega og skriflega spurningum um jazzsöguleg málefni s.s. samhengi, orsakir, afleiðingar, stíl og þróun.
- Þekkja eftir heyrn ólíka stíla.
- Þekkja eftir heyrn stíl mikilvægustu listamanna.
- Geta greint söguleg einkenni í samræmi við þróun stíls á tímabilinu.
- Fjalla um jazzsöguleg málefni í heimildaritgerð.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeið á nemandi að:
- Þekkja helstu listamennn sem móta tímabilið og áhrifamestu verk þeirra.
- Þekkja og skilja helstu stíla jazztónlistar á tímabilinu.
- Geta fjallað um og útskýrt stílræn einkenni í jazztónlist tímabilsins.
- Hafa grunngetu til að fjalla um sögulegt samhengi jazztónlistar á mismunandi skeiðum.
- Hafa yfirsýn og getu til að fjalla um þróun stíleinkenna á tímabilinu.
Námsmat: Próf úr efni í annarlok, hlustunarpróf og ritgerð.
Til baka í áfangayfirlit.