Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 5

Viðfangsefni: Hljóðfærafræði blásara, tónsmíðar, laglínutúlkun, raddsetningaraðferðir, nótnaskriftarforrit, frágangur parta og raddskrár

Lýsing: Í rytmískum útsetningum 1.2 læra nemendur að skrifa fyrir blásturshljóðfæri í rytmískri tónlist. Áfanginn byggir á grunni rytmískra útsetninga 1.1. og læra nú nemendur í áfanganum að sameina hrynsveit og blásturshljóðfæri með ýmsum útsetningaaðferðum. Nemendur læra um eiginleika og takmarkanir helstu blásturshljóðfæra í rytmískri tónlist, ásamt sértækri laglínutúlkun þeirra og merkjum. Farið verður í raddsetningaraðferðir fyrir tvo og svo þrjá blásara og farið verður í ýmsar aðferðir hvernig megi sameina þá eða spila á móti hvor öðrum.

Nemendur munu kynnast skrifum fyrir blásara í aðalhlutverki en einnig hvernig nota má blásara sem bakgrunnshljóðfæri.

Nemendur munu nota nótnaskriftarforrit í áfanganum og er ætlast til að nemendur hafi haldbæra þekkingu á nótnaskriftarforriti. Kennt verður á Dorico en það er einnig í lagi að nota Musescore.

Við lok áfangans eiga nemendur að geta gert sannfærandi útsetningu með góðum heildarsvip fyrir hrynsveit og þrjá blásra, sem verður jafnframt lokaverkefni áfangans. Leitast verður eftir því að taka útsetninguna upp í flutningi lifandi hljómsveitar í lokatímanum.

Forkröfur:

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

• helstu blásturshljóðfærum í rytmískri tónlist, takmörkum þeirra og eiginleikum
• helstu raddsetningaraðferður fyrir blásturshljóðfæri í rytmískri tónlist
• notagildi laglínutúlkunur með ýmsum aðferðum, merkjum og táknum
• nótnaskrift í tölvu

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

• skrifa fyrir blásturshljóðfæri á skýran hátt
• sameina hrynsveit og blásturshljóðfæri í áhrifaríkri útsetningu
• skila af sér skýrum og fullbúinni raddskrá og pörtum, tilbúnum til spilunar

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

• útsetja eigin tónsmíð og annarra, á skýran hátt, fyrir hrynsveit og blásturshljóðfæri
• geta útskýrt og leitt æfingu á eigin tónsmíð eða annarra

Námsmat: Ástundun, þátttaka í tímum, heimaverkefni og lokaútsetning reiknast til lokaeinkunnar.

Til baka í áfangayfirlit.