Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Tónfræðileg þekkingaratriði, hljómtákn, heimahljómar í dúr, heimahljómar í moll, endar, aukaforhljómar, lánshljómar, hljómaskemu í popptónlist

Lýsing: Í áfanganum verður farið í hljómamál popp- og dægurtónlistar, frá upphafi rokktímabilsins til dagsins í dag. <br /> Í upphafi áfangans er farið í heimahljóma í dúr og moll og svo algenga hljóma sem ekki teljast til heimahljóma en eru algengir í popp- og dægurtónlist. Kennd verða frumtök í hljómgreiningu með rómverskum sætistölum.<br /> Síðar verður farið í hljómaskemu í popptónlist – sérstaklega þekkt hljómferli. Skoðuð verða fjölbreytt skemu og munu nemendur öðlast bæði þekkingu á mismunandi skemum, greiningu þeirra á blaði sem og eftir heyrn.<br /> <br />

Forkröfur: Popplínuhljómfræði 1.1

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Heimahljómum í dúr og moll og öðrum algengum hljómum í dægurtónlist
  • Samspil hljóma og mismunandi endum á frösum
  • Hljómaskemum og hljómferlum í dægurlögum, frá 1950 til dagsins í dag
  • Mismunandi útgáfum af sama hljómaskema


Leikniviðmið:

Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • Hljómgreina heimahljóma í dúr og moll
  • Greina mismunandi hljómaskemu af blaði og eftir heyrn
  • Hlusta á eftir bassahreyfingum í lögum og hvort hljómar séu í grunnstöðu eða hljómhvörfum


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Þekkja algeng hljómaskemu við fyrstu hlustun og geta leikið þau eftir
  • Nýta hljómamál popptónlistar og útvíkka hljómamál í eigin tónsköpun
  • Hlusta og geta greint fljótt þekkt hljómferli í lögum


Námsmat:

Til baka í áfangayfirlit.