Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Tónfræðileg þekkingaratriði, taktur, trommutaktar, laglínur, frasar, form og áferðir í popptónlist

Lýsing: Í áfanganum leggjum við grunn að þekkingu til að geta greint popp- og dægurtónlist út frá ýmsum sjónarhornum og ýmsum tímum.

Í upphafi verður farið í að skoða form laga í þröngu og víðu samhengi. Skoðað er hvernig popplög frá 1950 fram til dagsins í dag eru byggð upp, allt frá hendingum einstakra ljóðlína upp í heildaform þeirra.

Við beinum einnig sjónum að trommutöktum. Nemendur fá útskýringu á trommusettinu, hvernig algengir trommutaktar eru uppbyggðir og verða trommutaktar í ýmsum lögum frá ýmsum tímum skoðaðir og greindir.

Forkröfur: Miðpróf í tónfræði

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

• Trommutöktum, hlutverki og fjölbreytileika þeirra
• Hvernig laglínur eru uppbyggðar í mismunandi tónlistarstílum
• Fjölbreyttu formi popplaga og hlutum þess
• Áferð popptónlistar

Leikniviðmið:

Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

• Skrifa upp trommutakta eftir heyrn
• Greina laglínur (og texta) í frasa
• Formgreina margskonar popplög
• Heyra og greina ýmsar áferðir laga

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

• Greina heildarmynd lags við fyrstu hlustun
• Mynda sér persónulega skoðun um lög og stutt hana af þekkingu
• Búa til sína eigin trommutakta
• Semja fjölbreytta tónlist

Námsmat:

Til baka í áfangayfirlit.