Hæfniþrep: 1
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: Saga rokk- og dægurlagatónlistar, tækja- og tækniþróunar og þróun helstu útbreiðslumiðla.
Lýsing: Hugtakið dægurtónlist (popular music) er skilgreint og gerð grein fyrir því hvernig fjölprentaðar nótur, útgáfa hljómplatna, tilkoma talmynda og starfræksla útvarpsstöðva áttu þátt í að efla útbreiðslu dægurtónlistar í upphafi 20. aldar. Gerð er grein fyrir því hvernig rokk- og dægurtónlist verður smám saman til þegar alþýðu-, blús-, trúar- og sálartónlist blandast saman við hrynræna djass-, þjóðlaga-, sveita-, söngleikja- og danstónlist. Farið er yfir tímabilið frá 1877 til 1970. Upphafsárið miðast við hljóðritann sem Edison fann upp en sú tækni lagði grunn að fjöldaframleiðslu hljómplatna og síðan er tækni- og tónlistarþróunin rakin til þess tíma er hljómsveitin The Beatles er lögð niður.
Forkröfur: Engar.
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Námsmat fer fram með ritgerð og prófi þar sem spurt er út úr námsefni annarinnar og skilningur nemanda kannaður.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal:
- Þekkja helstu tónlistarstefnur tímabilsins.
- Öðlast þekkingu á mismunandi stílbrigðum rokk- og dægurtónlistar.
- Kunna skil á helstu hugtökum og geta gert grein fyrir tækniþróun tímabilsins.
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Nemandi skal:
- Þekkja helstu áhrifavalda og þátttakendur í þróun í rokk- og dægurtónlist á fyrri hluta 20. aldar.
- Þekkja helstu lög og tónverk tímabilsins.
- Geta skrifað ritgerð um tónlistarstefnu eða tónlistarfólk tímabilsins.
- Geta lagt mat á mikilvægi einstakra tónlistarmanna og verka þeirra.