Hæfniþrep: 3
Einingafjöldi: 5
Viðfangsefni: Jazztónsmíðar fyrir hljóðfæri og söng.
Lýsing: Áfanginn er framhaldsáfangi í jazztónsmíðum.Í áfanganum semja nemendur jazzlög samkvæmt vikulegum verkefnum sem kennari setur fyrir. Nemendur flytja verk sín og annara nemenda í tímum. Einnig fræðast þeir um jazztónsmíðar ólíkra stíla og einstaklinga í gegnum hlustun, umræður og gestafyrirlesara.
Forkröfur: Jazztónsmíðar 1.1
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Einkunn er byggð á reglulegum verkefnaskilum í formi tónsmíða, mætingu og þáttöku í umræðum.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ólíkum stílum jazztónlistar
- ólíkum tónsmíðaaðferðum
- aðferðum og hefðum í gerð lagblaða (lead sheet)
- jazztónsmíðum nýrri stíla
- helstu tónsmíðaaðferðum klassískrar tónlistar sem nýta má í jazztónlist
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- semja lög við texta
- semja lög í lengri kaflaskiptum formum
- semja lög í óreglulegri formum
- semja lög byggð á tólftónaröð
- semja lög í ólíkum eldri stílum svo sem bebop, bossa nova, modal og free.
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta samið áheyrileg jazzlög í ólíkum stílum
- geta sett fjölbreytileg jazzlög skýrt og skilmerkilega fram á nótum samkvæmt ríkjandi hefðum í lagblaðagerð
- leggja grunn að persónulegum jazztónsmíðastíl
Námsmat: Einkunn er byggð á reglulegum verkefnaskilum í formi tónsmíða, mætingu og þáttöku í umræðum.
Til baka í áfangayfirlit.