Hæfniþrep: 3
Einingafjöldi: 5
Viðfangsefni: Jazztónsmíðar
Lýsing: Í áfanganum semja nemendur jazzlög samkvæmt vikulegum verkefnum sem kennari setur fyrir. Nemendur hjálpast að við að flytja verkin í tímum. Einnig fræðast þeir um jazztónsmíðar ólíkra stíla og einstaklinga í gegnum hlustun, umræður og gestafyrirlesara.
Forkröfur: Jazzhljómfræði 1.2
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Einkunn er byggð á reglulegum verkefnaskilum í formi tónsmíða, mætingu og þáttöku í umræðum.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ólíkum stílum jazztónlistar hvað varðar tónsmíðar
- ólíkum tónsmíðaaðferðum
- aðferðum og hefðum í gerð lagblaða (lead sheet)
- algengum jazzstandördum
- algengustu píanóraddsetningum og undirleikstækni.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- semja ólíkar gerðir jazztónlistar og skyldra stíla í gegnum tónsmíðaverkefni
- að semja modal lög
- að semja í blúsforminu og afbrigðum þess
- að semja lög byggð á bassalínum
- að semja lög byggð á tónsmíðaaðferðum klassískrar tónlistar
- að semja lög innan hefða jazzstandarda
- að semja laglínu fyrst
- að semja hljómagang fyrst
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta samið einföld, áheyrileg jazzlög
- geta sett einföld jazzlög skýrt og skilmerkilega fram á nótum samvkæmt ríkjandi hefðum í lagblaðagerð
Námsmat: Einkunn er byggð á reglulegum verkefnaskilum í formi tónsmíða, mætingu og þáttöku í umræðum.
Til baka í áfangayfirlit.