Hæfniþrep: 3
Einingafjöldi: 5
Viðfangsefni: Hljóðfærafræði, ritháttur helstu hljóðfæra í rytmískri tónlist, form útsetninga, laglínutúlkun, raddsetningaraðferðir, endurhljómsetning nálgunarnótna, mótlína, frágangur raddskráa og parta.
Lýsing: Í áfanganum er farið í grunnatriði djassútsetninga þar sem jafnvægi er á lóðrétta og lárétta nálgun útsetningar. Við einblínum á að tjá okkur á skýran og lagrænan hátt í útsetningum sem og skilmerkilegri framsetningu parta og raddskrár sem skilar sér í ánægjulegri upplifun og spilun hljóðfæraleikarans. Það er ekkert lokapróf í áfanganum heldur eru smærri heimaverkefni jafnt og þétt yfir önnina. Lokaverkefni er fullbúin útsetning á djassstandard fyrir 4 blásara og hrynsveit tilbúin til spilunar. Verkefnaskil fara fram í gegnum nótnaskriftarforrit. Nemendur eru hvattir til að kynna sér nótnaskriftarforrit fyrir áfangann. Hafið samband við kennarann fyrir nánari upplýsingar.
Forkröfur: Rytmísk hljómfræði 2.2
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Ástundun, þátttaka í tímum, heimaverkefni og lokaútsetning reiknast til lokaeinkunnar.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu raddsetningaraðferðum fyrir tvo og fjóra blásara
- Notagildi laglínugreiningar með tilliti til endurhljómsetningar nálgunarnótna
- Formi og helstu köflum útsetningar og hvernig þeir tengjast saman
- Helstu hljóðfærum í rytmískri tónlist, takmörkum þeirra og eiginleikum
- Góðum frágangi á raddskrá og pörtum
Leikniviðmið:
Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- Nálgast útsetningarferlið á skilvirkan hátt
- Beita bæði kerfisbundnum aðferðum sem og listrænum við gerð útsetningar
- Útsetja fyrir hefðbundna hrynsveit og algengustu blásturshljóðfæri í djassstíl
- Skila af sér skýrum og fullbúnum pörtum og raddskrá tilbúnum til spilunar
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Útsetja eigin tónsmíð eða annarra
- Útsetja fyrir nemendur í kennslu eða önnur tilefni í kennslustofnunum
- Geta leitt æfingar á eigin útsetningum