Hæfniþrep: 2
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: Hljóma- og tónstigakunnátta á hljómborð fyrir þá sem læra á önnur hljóðfæri en hljómborðshljóðfæri.
Lýsing: Í áfanganum eru kenndir einfaldir hljómar og hljómasambönd sem nýtast vel þeim sem vilja auka skilning sinn á tón- og hljómfræði. Einnig eru kenndir tónstigar. Áfanginn er hugsaður til að auka hagnýta hljómborðsþekkingu þeirra sem leika á önnur hljóðfæri.
Forkröfur: Hljómborðsfræði 1.1. (Athugið að Hljómborðsfræði 1.1 og 1.2 getur verið staðgengill áfangans Snarstefjun 1.1 og 1.2 fyrir trommu- og söngnemendur).
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Það fara fram tvö jafngild próf á önninni. Prófað er úr kunnáttu nemenda í að leika hljóma, hljómferli, tónstiga og eitt undirbúið lag. Auk þess er óundirbúinn hljómalestur í hverju prófi.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu hljómgerðum í öllum hljómhvörfum.
- Einföldum algengum hljómferlum. Áhersla lögð á II-V-I og moll II-V-I.
- Helstu tónstigum í algengustu tóntegundum.
- Öðrum algengum stílbrigðum í hljómsetningum sem verða ekki til prófs.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Leika alla algengustu hljóma í öllum hljómhvörfum.
- Leika hljómferli eins og II-V-I og moll II-V-I.
- Leika algengustu tónstiga í nokkrum tóntegundum.
- Æfa og flytja lög.
- Leika óundirbúin hljómferli af blaði.
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Leika algengustu hljóma og tónstiga fumlaust á hljómborðshljóðfæri.
- Leika algeng hljómferli sem hjálpa til við að auðvelda lestur á hljómablöðum.
- Lesa hljómferli beint af blaði.
- Leika ýmis lög sem farið er yfir í tímum.