Hæfniþrep: 1
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: Tónlistarsaga, hlustun, formfræði
Lýsing: Á námskeiðinu er farið yfir tónlistarsögu 19. aldar, rómantíska skeiðið (ca. 1815- 1900), þar sem fjallað er um helstu höfunda og verk sem móta tímabilið. Sagan er skoðuð í samhengi við almenna sögu 19. aldar í gegnum orsakir og afleiðingar. Leitast er við að tengja og skilja stöðu, þróun og framvindu tónlistarinnar í ljósi ýmiskonar þjóðfélagslegra umbrota sem fylgdu tímaskeiðinu.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Námsmat byggir á lokaprófi auk verkefna sem dreifast yfir önnina. Nánari upplýsingar um uppbyggingu námsmatsins má finna í kennsluáætlun frá kennara sem nemendur fá afhenta í upphafi áfangans.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mikilvægi tónlistarsögu fyrir heildrænan þroska í tónlist.
- Fagurfræðilegum og hugmyndafræðilegum forsendum er liggja til grundvallar mismunandi stílum og einkennum tónverka.
- Hvernig mikilvægir atburðir í mannkynssögunni hafa áhrif á þróun tónsköpunar.
- Þróun stíls og einkenna á mismunandi tímabilum.
- Gagnkvæmum áhrifum á milli mismunandi listgreina.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Fjalla um afmörkuð viðfangsefni er tengjast tónlistarsögu á 19. öld.
- Svara munnlega og skriflega spurningum um tónlistarsöguleg málefni s.s. samhengi, orsakir, afleiðingar, stíl og áferð.
- Þekkja mismunandi tónverk með tilliti til höfundareinkenna, stíls og áferðar.
- Geta greint söguleg einkenni í samræmi við þróun stíls á tímabilinu.
- Fjalla um tónlistarsöguleg málefni í heimildaritgerð.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeið á nemandi að:
- Þekkja helstu höfunda og verk sem móta tímabilið.
- Þekkja og skilja helstu einkenni sem fylgja rómantískri tónlist 19. aldar.
- Geta fjallað um og útskýrt áberandi rómantísk einkenni í tónlist.
- Hafa grunngetu til að fjalla um sögulegt samhengi 19. aldar tónlistar.
- Hafa yfirsýn og getu til að útskýra helstu form og gerðir verka á rómantíska skeiðinu.
- Hafa yfirsýn og getu til að fjalla um þróun rómantíska stílsins á tímabilinu.