Hæfniþrep: 1
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: Vestræn tónlistarsaga frá upphafi til 1600
Lýsing: Farið verður yfir helstu strauma og stefnur í vestrænni tónlistarsögu frá upphafi til 1600. Viðfangsefni áfangans er fyrst og fremst tónlist fornalda, miðalda og endurreisnar. Lögð er sérstök áhersla á hlustun, greiningu og að nemendur öðlist skynbragð á stíl og þróun tónlistar á tímabilinu.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Námsmat byggir á lokaprófi auk verkefna sem dreifast yfir önnina. Nánari upplýsingar um uppbyggingu námsmatsins má finna í kennsluáætlun frá kennara sem nemendur fá afhenta í upphafi áfangans.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Grundvallaratriðum í þróun vestrænnar tónlistar fyrir 1600.
- Mikilvægi góðrar þekkingar á tónlistarsögu fyrir tónlistarmenn.
- Fagurfræðilegum bakgrunni tónlistar á tímabilinu.
- Tengingu atburða í mannkynssögunni við þróun tónlistar.
- Tengingu milli ólíkra listgreina á tímabilinu.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Fjalla um tónlist og tónlistarsöguleg málefni af þekkingu og innsæi.
- Svara á gagnrýnan og upplýstan hátt spurningum um söguleg viðfangsefni.
- Þekkja höfundareinkenni og stíl helstu tónskálda á tímabilinu.
- Geta greint helstu strauma og stefnur í evrópskri tónlist á tímabilinu.
Hæfniviðmið:
- Þekkja helstu höfunda og verk sem móta tímabilið.
- Bera kennsl á helstu einkenni þeirrar tónlistarsemi fjallað er um í áfanganum.
- Geta fjallað um sögulegt samhengi tónlistar.
- Hafa yfirsýn yfir stíl og hæfni til að fjalla um helstu formgerðir verka á tímabilinu.