Hæfniþrep: 2

Einingafjöldi: 3

Viðfangsefni: Tónbil, moll/dúrtónstigar, taktsláttur, einfaldar laglínur í moll og dúr, einfaldur hrynur, nótnalestur, nótnaritun.

Lýsing: Nemendur syngja lög og tónbilaæfingar, fara með hryn og æfa lestur í g- og f-lykli. Þá rita þeir niður eftir eyra einfaldar laglínur og einföld hryndæmi af svipuðum toga og lært efni. Allt efni er kynnt og undirbúið í kennslutímum en nemendur þurfa að æfa sig reglulega heima og gildir það um allt námsefnið. Kennslubækur eru: Folk Song Sight Singing Series, hefti 3-4; P. Hindemith: Elementary Training; G. Dandelot: Manuel Pratique og R. Starer: Rhythmic Training.

Forkröfur: Tónheyrn 1.1.

Þekkingarviðmið:

• Syngja 5undir, 6undir og 7undir upp og niður frá gefnum tóni og geta greint sömu tónbil þegar þau eru slegin á píanó.
• Stjórna fimm- og sexskiptum takti samtímis því að syngja lög eða fara með hryn.
• Syngja alla molltónstigana upp og niður frá gefnum tóni á nótnaheitum, frumhljómur gefinn.
• Stökkva raddlega viðstöðulaust á milli allra tóna í molltónstiganum, frumhljómur gefinn.
• Syngja einföld lög í moll og dúr á nótnaheitum sbr. hefti 3 og 4 í Sight Singing Series.
• Fara með ein- og tvíradda hrynæfingar sbr. kafla IV í Elementary Training og æfingar 27–36 í Rhythmic Training.
• Skrifa niður eftir heyrn einföld lög annars vegar og hins vegar einfaldan hryn.



Leikniviðmið:

• Hafa ofantalin þekkingaratriði þrautalaust á valdi sínu í músíkölsku samhengi.
• Geta farið hnökralítið með þær æfingar sem settar eru fyrir.
• Geta skráð vandkvæðalítið eftir heyrn þau dæmi sem leikin eru.



Hæfniviðmið:

• Hafa lesfærni á ritaða tónlist.
• Geta yfirfært hryn og tóna yfir á rittákn.
• Geta heyrt ritaða tónlist og ritað heyrða.



Námsmat: Námsmat byggir á lokaprófi auk verkefna sem dreifast yfir önnina. Nánari upplýsingar um uppbyggingu námsmatsins má finna í kennsluáætlun frá kennara sem nemendur fá afhenta í upphafi áfangans.

Til baka í áfangayfirlit.