Hæfniþrep: 3
Einingafjöldi: 4
Viðfangsefni: Tónbil, dúr og molltónstigar, taktsláttur, laglínur í moll og dúr, hrynur, nótnalestur, nótnaritun.
Lýsing: Nemendur syngja lög og tónbilaæfingar, fara með hryn og æfa lestur í g- og f-lykli. Þá rita þeir niður eftir eyra laglínur og hryndæmi af svipuðum toga og lært efni. Allt efni er kynnt og undirbúið í kennslutímum en nemendur þurfa að æfa sig reglulega heima og gildir það um allt námsefnið. Kennslubækur eru: Folk Song Sight Singing Series, hefti 5-6; P. Hindemith: Elementary Training; G. Dandelot: Manuel Pratique og R. Starer: Rhythmic Training.
Forkröfur: Tónheyrn 1.2.
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Námsmat byggir á lokaprófi auk verkefna sem dreifast yfir önnina. Nánari upplýsingar um uppbyggingu námsmatsins má finna í kennsluáætlun frá kennara sem nemendur fá afhenta í upphafi áfangans.
Til baka í áfangayfirlit.

- Syngja 2undir, 3undir og 4undir niður og upp frá gefnum tóni og geta greint sömu tónbil þegar þau eru slegin á píanó, hraðar en í tónheyrn 1.1.
- Stjórna 7skiptum takti samtímis því að syngja lag eða fara með hryn.
- Stökkva viðstöðulaust á milli allra tóna dúr- eða molltónstiga, hraðar en í tónheyrn 1, frumhljómur gefinn.
- Syngja lög í dúr og moll á nótnanöfnum sbr. hefti 5 og 6 í Sight Singing Series.
- Fara með ein- og tvíradda hrynæfingar sbr. kafla IV og V í Elementary Training.
- Skrifa niður eftir heyrn lög í dúr og moll annars vegar og hins vegar hryndæmi, hvort tveggja af svipuðum toga og lært efni.
Leikniviðmið:
- Hafa ofantalin þekkingaratriði þrautalaust á valdi sínu í músíkölsku samhengi.
- Geta farið hnökralítið með þær æfingar sem settar eru fyrir.
- Geta skráð vandkvæðalítið eftir heyrn þau dæmi sem leikin eru.
Hæfniviðmið:
- Hafa lesfærni á ritaða tónlist.
- Geta yfirfært hryn og tóna yfir á rittákn.
- Geta heyrt ritaða tónlist og ritað heyrða.