Svana hóf tónlistarnám hjá Gunnari Sigurgeirssyni þar sem hún lærði fyrstu árin. Þaðan fór hún í Tónlistarskólann í Reykjavík og stundaði píanónám hjá Hermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal og Árna Kristjánssyni. Hún lauk kennaraprófi frá skólanum vorið 1976 og einleikaraprófi ári síðar. 1978 hélt Svana til Vestur-Berlínar og stundaði framhaldsnám við Hochschule der Künste þar sem kennarar hennar voru Klaus Schilde og Geörgy Sava. Hún lauk diplómaprófi frá skólanum vorið 1983.
Svana er einn af stofnendum Kvennakórs Reykjavíkur og var píanóleikari kórsins fyrstu árin. Hún hefur tekið þátt í ýmsum píanónámskeiðum svo sem í Siena á Ítalíu, Aspen í Colorado, Ernen í Sviss og komið fram á tónleikum með öðrum hljóðfæraleikurum m.a. í Finnlandi, Ítalíu og Færeyjum.
Að námi loknu starfaði Svana í nokkur ár sem píanókennari við Nýja Tónlistarskólann, en undanfarna áratugi hefur hún starfað sem píanókennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarskóla FÍH.
Símanúmer: 551 2474 / 696 0402
Til baka í kennarayfirlit