Hæfniþrep: 3
Einingafjöldi: 3
Viðfangsefni: Tölvusetning nótna, venjur í hefðbundinni nótnaritun, tölvusetning nótna, notkun flýtilykla, venjur í rytmískri nótnaritun, uppsetning lagblaða, tónsmíðar, innsetning MIDI skráa, frágangur parta og raddskrár.
Lýsing: Nótnaritun í tölvu snýst um að læra haldbæra þekkingu á innslætti nótna í tölvu með nótnaskriftarforritinu Dorico. Farið er í ýmsa þætti sem lúta að réttritunarreglum nótnaskriftar ásamt því að kafa undir yfirborð nótnaskriftarforritsins Dorico. Tekið verður á ýmsu þáttum tónlistarsköpunar og þeir tengdir við Dorico á einn eða annan hátt. Verkefni áfangans eru upprit á fjölbreyttum tónverkum og önnur verkefni, gerð í tíma og heima. Notast er við nótnaskriftarforritið Dorico Elements. Nemendur fá nemendaafslátt á Dorico hjá Hljóðfærahúsinu gegn staðfestingu skólavistar. Nemendur þurfa tölvu með uppsettu Dorico. Athuga skal hvort hugbúnaður tölvunnar standist kröfur Dorico.
Forkröfur: Tónfræði
Þekkingarviðmið:
Leikniviðmið:
Hæfniviðmið:
Námsmat: Ástundun, þátttaka í tímum og verkefni reiknast til lokaeinkunnar.
Til baka í áfangayfirlit.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Hvernig Dorico er uppbyggt og hugmyndafræði þess
- Tölvusetningu nótna, merkja og leiðbeininga til hljóðfæraleikara, samkvæmt hefðbundnum nótnaskriftarreglum fyrir klassíska og rytmíska tónlist og uppsetningu raddskráa og parta
- Öllum helstu nótnaskriftarhefðum, réttritunarreglum og frágangi á raddskrám og pörtum, fyrir klassíska og rytmíska tónlist
Leikniviðmið:
Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- Tölvusetja raddskrá, parta og lagblöð með lyklaborði tölvunnar með aðstoð flýtilykla
- Semja tónlist beint inn í forritið
- Flytja inn skjöl úr öðrum forritum og vinna með þau
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Nota Dorico með góðri þekkingu um möguleika þess
- Skrifa sín eigin lög, hugmyndir, útsetningar eða lagblöð beint inn í forritið á skýran og skilmerkilegan hátt fyrir sig og aðra hljóðfæraleikara, á fljótlegan hátt