Hrönn stundaði píanónám hjá Erlu Stefánsdóttur og síðar hjá Jónasi Ingimundarsyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún lauk burtfararprófi frá skólanum 1998.
Í Þýskalandi stundaði hún nám við tónlistarháskólann í Freiburg og lauk þaðan Diploma kennaraprófi með ljóðasöngsmeðleik sem aukafag vorið 2004. Kennarar hennar voru Prof. Dr. Tibor Szasz í píanóleik og Prof. Hans-Peter Müller við ljóðasöngdeild.
Að því loknu stundaði hún nám við tónlistarháskólann í Stuttgart undir handleiðslu Prof. Cornelis Witthoefft þar sem hún lauk sumarið 2007 mastersnámi við ljóðasöngdeild skólans.
Hrönn hefur komið fram á tónleikum víða, m.a. í Þýskalandi, Austurríki, Noregi, Ítalíu, Grænlandi og á Íslandi sem einleikari, meðleikari og við flutning kammertónlistar, auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska m.a.með kammersveitinni Ísafold.
Hún hefur tekið þátt í ýmsum hátíðum eins og Ung Nordisk Musik, Músíkdagar í Færeyjum, Við Djúpið á Ísafirði og hátíðinni Berjadögum á Ólafsfirði.
Hrönn hefur verið virk í flutningi nýrrar tónlistar m.a. á Myrkum Músíkdögum og með kammersveitinni Ísafold, en með kammersveitinni hlaut hún íslensku tónlistarverðslaunin sem flytjandi ársins fyrir árið 2007.
Hrönn er kennari við Söngskólann í Reykjavík og við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Símanúmer: 534 3739 / 845 5089
Til baka í kennarayfirlit