Svana hóf  tónlistarnám hjá Gunnari Sigurgeirssyni þar sem hún lærði fyrstu árin. Þaðan fór hún í Tónlistarskólann í Reykjavík og stundaði píanónám hjá  Hermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal og Árna Kristjánssyni.  Hún lauk  kennaraprófi frá skólanum vorið 1976 og einleikaraprófi ári síðar.   1978  hélt Svana til Vestur-Berlínar og stundaði framhaldsnám við Hochschule der Künste þar sem kennarar hennar voru Klaus Schilde og Geörgy Sava. Hún lauk  diplómaprófi frá skólanum vorið 1983.

Svana er einn af stofnendum Kvennakórs Reykjavíkur  og var píanóleikari kórsins fyrstu árin. Hún hefur tekið þátt í ýmsum píanónámskeiðum svo sem í Siena á Ítalíu, Aspen í Colorado, Ernen í Sviss og komið fram á tónleikum með öðrum hljóðfæraleikurum  m.a. í Finnlandi, Ítalíu og Færeyjum.

Að námi loknu starfaði Svana í nokkur ár sem píanókennari við Nýja Tónlistarskólann, en undanfarna áratugi hefur hún starfað sem píanókennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarskóla FÍH.

Netfang: svanavikings@hotmail.com
Símanúmer: 551 2474 / 696 0402

Til baka í kennarayfirlit