Stefanía hóf fiðlunám í Tónmenntaskóla Reykjavíkur hjá Kristínu Th. Gunnarsdóttur og lærði síðar við Tónlistarskólann í Reykjavík undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur, Bryndísar Pálsdóttur og síðar Guðmundar Kristmundssonar eftir að hún skipti yfir á víólu. Stefanía lauk BA prófi í víóluleik frá Fontys Conservatorium í Hollandi með ágætiseinkunn árið 2004 og kennsluréttindadiplóma frá Listaháskóla Íslands árið 2007. Hún hefur einnig lokið ýmis konar námskeiðum í vefsíðugerð, grafískri hönnun og forritun.

Stefanía hefur starfað á fjölbreyttum vettvangi innan tónlistarinnar; leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Hljómsveit Íslensku óperunnar, kennt tónmennt við Landakotsskóla og Hólabrekkuskóla, stýrt yngsta stúlknakór Domus Vox um fjögurra ára skeið auk þess að hafa sinnt forfallakennslu á fiðlu og víólu. Stefanía starfaði á skrifstofu Tónlistarskólans í Reykjavík um margra ára skeið og gegndi stöðu deildarstjóra klassískrar deildar og aðstoðarskólameistara Menntaskóla í tónlist í janúar um nokkurra ára bil. Stefanía kennir nú lífsleikni við MÍT.

Auk tónlistarinnar á hugleiðsla stóran sess í lífi Stefaníu og kemur hún að stjórn og rekstri hugleiðslumiðstöðva Lótushúss á Íslandi og í Noregi og heldur úti vefsíðunni heillastjarna.is sem sérhæfir sig í að framleiða hugleiðsluefni fyrir börn, ætlað grunnskólum og fjölskyldum.

Netfang: stefania@menton.is
Símanúmer: 692 3808

Til baka í kennarayfirlit