Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Áhersla er lögð á að efla tónheyrn og færni í að greina hvernig tónbil, laglínur, hljómar og hljómasambönd eru uppbyggð. Námið miðar að því að nemendur hafi vald á að syngja, greina og skrifa niður algeng takt-, laglínu- og hljómferli. Tónbil ná stundum út fyrir áttund og laglínu- og hljómadæmi eru gjarnan heldur lengri en áður. Í hrynþjálfun er í vaxandi mæli þjálfuð samhæfing og sextándupartar bætast við.

Lýsing: Tónlestur, tónbil og ritun hljóma, laglínu- og hrynferla. Í tónheyrninni er notast við Solfa kerfið. Aukin áhersla á að skilja og heyra algenga tónstiga.

Forkröfur: Rytmísk tónheyrn 1.2.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Laglínusöng með Solfa aðferð og uppbyggingu hljóma.
  • Hvernig algengar rytmískar hrynhendingar, byggðar á áttundaparts- og sextándapartsnótum, eru útfærðar í nótnaskrift.


Leikniviðmið:

Hæfniviðmið:

Nemandi skal hafa tileinkað sér færni í að:

  • Heyra, syngja og rita niður einfaldar laglínuhendingar í dúr- og molltónstigum, sem byggðar eru á algengum rytmískum hrynmynstrum og stöku ódíatónískar nótur koma fyrir í.
  • Greina algeng hljómferli sem eru að mestu innan tóntegundar.
  • Hagnýta sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur öðlast, til að efla samleik og spuna. 


Námsmat: Próf og námsmat: Frammistaða í tímum (10%), 3 áfangapróf (30%), skriflegt og munnlegt próf í lok námskeiðs þar sem hvort gildir (30%).

Til baka í áfangayfirlit.