Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 4

Viðfangsefni: Áhersla er lögð á að efla færni nemanda í beitingu rytmískrar hljómfræði og hagnýtri notkun hennar í spuna og tónsmíðum ásamt kynningu á hljómrænu tungumáli jazztónlistar. Nemendur fái haldgóða tilfinningu fyrir tengslum hljóma og tónstiga á hljóðfæri sín.

Lýsing: Upprifjun á fyrra námsefni. Smástígir forhljómar verða kenndir ásamt #IV-7(b5) hljóminum, tóntegundaskiptum, notkun minnkaðra sjöundarhljóma í endurhljómsetningum og hlustun.

Forkröfur: Rytmísk hljómfræði 1.2.

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hljómgreiningaraðferðum og greiningu tónstiga ásamt tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik og tónsmíðar.


Leikniviðmið:

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hljómgreina algeng lög og verkefni.
  • Greina samhengi tónstiga við hljóma og um leið nýta sér þá þekkingu og útfæra með spuna á hljóðfæri sitt.
  • Semja eigin tónsmíðar.
  • Efla samleik og spuna.


Námsmat: Tvö próf: Próf í lok áfanga, skriflegt og verklegt. Skriflegi þátturinn gildir 80% og verklegi þátturinn gildir 20%. <br />

Til baka í áfangayfirlit.