Hæfniþrep: 2

Einingafjöldi: 5

Viðfangsefni: Lagasmíðar.

Lýsing: Í áfanganum kynnast nemendur laga og textasmíðum og læra að nýta þær á hagnýtan máta. Nemendur læra að greina form ýmissa tónlistarstíla og nýta sér fjölbreyttar aðferðir við eigin lagasmíðar. Nemendur flytja eigin lög og texta í tímunum.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • form- og hljómgreiningu ólíkra stíla.
  • samlíkingum og myndlíkingum við textagerð
  • fjölbreyttum aðferðum við laga og textasmíðar


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tileinka sér flæði texta og að nýta nýjar aðferðir við textagerð.
  • semja lag og texta eftir fyrirfram ákveðnu formi


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • semja lög í ólíkum stíltegundum
  • semja texta við eigin lög og annara


Námsmat: Einkunn er byggð á ástundun og verkefnaskilum.

Til baka í áfangayfirlit.