Hæfniþrep: 3

Einingafjöldi: 5

Viðfangsefni: Klassískar tónsmíðar

Lýsing: Viðfangsefni áfangans er meðal annars hljómagangur, lag- og bassaferli, hendingar, lotur, form og undirleikur. Haldið er áfram að kenna undirstöðuatriði í laglínugerð og hljómbyggingu. Sönglög Schuberts eru lögð til grundvallar ássamt hægum þáttum úr sónötum Beethovens.

Forkröfur: Tónsmíðar 1.1

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • því að gegnsemja sönglag.
  • þrískiptu formi.
  • tilbrigðum við stef.


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • semja fjögurra takta hendingu sem myndar lotu.
  • semja tilbrigði við stef


Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta búið til gegnsamið sönglag.
  • semja kafla í þrískiptu formi.


Námsmat:

Til baka í áfangayfirlit.