Hæfniþrep: 1

Einingafjöldi: 3

Viðfangsefni: Vestræn tónlistarsaga frá upphafi til 1600

Lýsing: Farið verður yfir helstu strauma og stefnur í vestrænni tónlistarsögu frá upphafi til 1600. Viðfangsefni áfangans er fyrst og fremst tónlist fornalda, miðalda og endurreisnar. Lögð er sérstök áhersla á hlustun, greiningu og að nemendur öðlist skynbragð á stíl og þróun tónlistar á tímabilinu.

Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grundvallaratriðum í þróun vestrænnar tónlistar fyrir 1600.
  • Mikilvægi góðrar þekkingar á tónlistarsögu fyrir tónlistarmenn.
  • Fagurfræðilegum bakgrunni tónlistar á tímabilinu.
  • Tengingu atburða í mannkynssögunni við þróun tónlistar.
  • Tengingu milli ólíkra listgreina á tímabilinu.


Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Fjalla um tónlist og tónlistarsöguleg málefni af þekkingu og innsæi.
  • Svara á gagnrýnan og upplýstan hátt spurningum um söguleg viðfangsefni.
  • Þekkja höfundareinkenni og stíl helstu tónskálda á tímabilinu.
  • Geta greint helstu strauma og stefnur í evrópskri tónlist á tímabilinu.


Hæfniviðmið:
  • Þekkja helstu höfunda og verk sem móta tímabilið.
  • Bera kennsl á helstu einkenni þeirrar tónlistarsemi fjallað er um í áfanganum.
  • Geta fjallað um sögulegt samhengi tónlistar.
  • Hafa yfirsýn yfir stíl og hæfni til að fjalla um helstu formgerðir verka á tímabilinu.


Námsmat: Námsmat byggir á lokaprófi auk verkefna sem dreifast yfir önnina. Nánari upplýsingar um uppbyggingu námsmatsins má finna í kennsluáætlun frá kennara sem nemendur fá afhenta í upphafi áfangans.

Til baka í áfangayfirlit.